Setti heimsmet í annað sinn 4. október 2011 20:00 „
Þetta er sætur sigur og líka mikill léttir,“ segir Hlynur Gunnarsson, sem gerði sér lítið fyrir og setti heimsmet í „skateboard stationary manual“ í versluninni Brimi í Kringlunni um helgina. Metið fólst í því að standa sem lengst á framdekkjum á hjólabretti án þess að afturdekkin snertu jörðina. Hlynur hélt jafnvægi í 7,59 mínútur. Þetta er í annað sinn sem Hlynur setur heimsmet í greininni. Í desember á síðasta ári bætti hann met bandaríska hjólabrettamannsins Rob Dyrdek. Sá var með 0,49 mínútur en Hlynur náði 3,05 mínútum. Í kjölfarið fékk hann skjal frá Guinness World Records því til staðfestingar. Sú sæla var hins vegar skammvinn því mánuði síðar var metið slegið af öðrum Bandaríkjamanni, Adam Zisa, með tímann 4,55 mínutur. Upp frá því varð Hlynur ákveðinn í að endurheimta titilinn. „Ég ákvað núna að slá metið í fyrstu tilraun og binda þannig um hnútana í þetta sinn að enginn gæti snert það næstu árin,“ upplýsir Hlynur, sem hefur verið við botnlausar æfingar síðustu mánuði. Samhliða því hefur hann verið önnum kafinn við að fá viðurkennda aðila, þar á meðal vitni, ljósmyndara, kvikmyndatökumann, tímaverði og smið sem gekk úr skugga um að undirlagið væri fullkomlega lárétt, til að vera viðstadda viðburðinn eins og Guinness gerir kröfu um. Hlynur er þegar búinn að senda öll gögn út til höfuðstöðva Guinness World Records í Bandaríkjunum og á ekki von á öðru en að hlutirnir gangi hratt fyrir sig. „Síðast liðu um átta vikur þar til ég fékk viðurkenningarskjal sent,“ bendir hann á og kveðst hlakka til að bæta öðru skjali upp á vegg heima hjá sér. Inntur út í þann „fjarlæga“ möguleika að einhverjum takist að slá metið segist Hlynur viðbúinn því. „Þá set ég bara allt á fullt aftur, enda fer maður ekkert að gefast upp. Ekki úr þessu,“ segir hann og þakkar fata- og brettaversluninni Brimi og vinum og vandamönnum veittan stuðning. Í myndbandinu hér fyrir ofan má sjá Hlyn um það leyti sem hann setti fyrra metið. roald@frettabladid.is
Mest lesið „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Lífið Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Lífið Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Lífið Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Lífið Loksins sást til hjónanna Lífið Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Lífið Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Lífið Björk og Yara nýtt par Lífið Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Lífið Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Lífið Fleiri fréttir „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Sjá meira