Leikmenn KR í hlutverki barþjóna á sigurhátíðinni 4. október 2011 07:00 Mikil gleði ríkti á Eiðistorgi á laugardagskvöldið þegar KR-ingar fögnuðu bæði bikar- og Íslandsmeistaratitli og hátt í tvö þúsund manns sungu sigursöngva. Slíkur var fögnuðurinn að Hafsteinn Egilsson, vertinn á Rauða ljóninu, fékk óvænta aðstoð á barnum þegar Grétar Sigfinnur Sigurðsson og Viktor Bjarki Arnarsson hlupu undir bagga og aðstoðuðu við afgreiðslu. „
Ég hef nú sagt það við menn á förnum vegi að nú hafi ég aðeins opið tvo daga á ári; þegar KR verður bikarmeistari og svo Íslandsmeistari,“ segir Hafsteinn Egilsson, vert á Rauða ljóninu. Gleðin draup af hverju strái í Vesturbænum á laugardagskvöldið þegar KR-ingar fögnuðu glæsilegu gengi í sumar. Liðið varð bæði Íslands- og bikarmeistari og því ljóst að stuðningsmennirnir, sem eru meðal þeirra kröfuhörðustu í íslenska boltanum, fengu nánast allar sínar óskir uppfylltar. Hátt í tvö þúsund manns máluðu Eiðistorgið í svörtum og hvítum litum á laugardagskvöldinu, tekið var á móti liðinu með 25 blysum og allur skarinn söng í einum kór: „Fimm stjörnu klúbbur“, en KR-ingar urðu Íslandsmeistarar í 25. sinn og hafa því uppskorið fimm stjörnur á búning sinn. „Það voru allir rosalega kátir og ekkert vesen, engin slagsmál eða nein leiðindi,“ segir Hafsteinn, sem hefur notið góðs af því að vera hæstráðandi á aðalkrá KR-inga í sumar eftir nokkra eyðimerkurgöngu. Slík var gleðin að allt „bland“ kláraðist á barnum og þurfti vertinn því að fara nokkrar ferðir í Hagkaup til að kaupa meira af slíkum drykkjum. „Ég reiknaði ekki með öllum þessum orkudrykkjum, unga liðið drakk hann út í vodka,“ segir Hafsteinn, en eldra liðið hélt sig á kunnuglegum slóðum og sötraði gin og tónik. Slíkur var atgangurinn við barinn að nokkrir leikmenn tóku sér stöðu hinum megin víglínunnar en fremstir þar í flokki voru varnartröllið Grétar Sigfinnur Sigurðsson og miðjumaðurinn Viktor Bjarki Arnarsson. „Þetta var bara eitthvað sem vatt upp á sig,“ segir Grétar, en hann afgreiddi drykki af mikilli list í klukkutíma. „Það var svo mikið að gera og mig vantaði afgreiðslu þannig að ég hjálpaði mér bara sjálfur, sem endaði með klukkutíma vinnu.“ Varnartröllið gerir þó lítið úr hæfileikum sínum sem barþjónn og telur að liðsfélagi sinn Viktor Bjarki myndi sóma sér betur í því hlutverki. Grétar segir það af og frá að fögnuðinum sé lokið. Í gær, þegar Fréttablaðið ræddi við hann, sagði hann að nú væri aðeins „þriðji í meistara“ og menn ætluðu sér að njóta sigurvímunnar. „Við ætlum að fara á októberhátíðina á KEX í kvöld og annað kvöld til að sýna Pétri Marteins bikarinn og horfa svo á Ásgeir Sigurvinsson drekka fyrsta bjórinn. Menn fagna síðan eitthvað út þessa viku.“ freyrgigja@frettabladid.isg
Mest lesið „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Lífið Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Lífið Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Lífið Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Lífið Loksins sást til hjónanna Lífið Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Lífið Björk og Yara nýtt par Lífið Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Lífið Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Lífið Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Lífið Fleiri fréttir „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Sjá meira