Í selskap með nöktum konum 2. júní 2011 04:00 Áhyggjusvipur var á Karli Gústaf Svíakonungi þegar hann mætti í einkaviðtal við sænsku fréttastofuna TT á mánudaginn til að svara fyrir meintar myndir af sér með nöktum konum.
á HLIÐARLÍNUNNI Silvía drottning og börnin Viktoría, Magðalena og Karl Filippus hafa haldið sig til hlés á meðan fjölmiðlastormurinn gengur yfir. Nordicphotos/afp Sænska þjóðin veit ekki í hvorn fótinn hún á að stíga gagnvart konungi sínum, Karli Gústaf, og meintum brotum hans. Kröfur um afsögn eru orðnar háværar og spá margir því að konungurinn falli á svipuðum tíma og laufin af trjánum enda vill þjóðin ekki hafa konung sem stundar strippklúbba. Nei, nei, nei og aftur nei voru svör Karls Gústafs Svíakonungs við spurningum TT-fréttastofunnar í sérstöku einkaviðtali á mánudaginn var. Þar neitaði hann að hafa heimsótt frægan strippstað í Bandaríkjunum, ráðið til sín konur í veislur, að hafa verið fastagestur á súludansstað í Slóvakíu og síðast en ekki síst að til væru myndir af honum í selskap með nöktum konum. Ofangreint eru sögusagnir sem hafa gengið um heimspressuna undanfarnar vikur. Það eru myndirnar sem vekja einna helst athygli en sá sem heldur því fram að hann hafi þær undir höndunum er hinn serbneski Mille Markovic. Sá hefur komið víða við á lífsleiðinni sem boxari, næturklúbbaeigandi, súludansstaðarekandi og leigumorðingi fyrir mafíuna. Myndirnar umtöluðu eiga að vera af Karli Gústaf og fylgdarliði hans á strippstaðnum Club Power í Stokkhólmi. Þar sést konungurinn skemmta sér vel innan um naktar konur en myndirnar eru stillur úr myndbandi sem Markovic á að hafa tekið. Sérfræðingar, meðal annars á vegum sænska blaðsins Aftonbladet, hafa fengið að skoða stillurnar og segja þær vera ekta. Það sem þykir einna helst renna stoðum undir að Markovic segi satt er að besti vinur konungsins, Anders Lettström, reyndi að kaupa af honum myndirnar fyrir háa upphæð. „Mér finnst það skrýtið að konungurinn haldi áfram að ljúga og viðurkenni ekki brot sín,“ segir Markovic í samtali við Aftonbladet, en hann hótar að setja myndirnar á netið á næstu dögum. Sænska þjóðin er klofin í afstöðu sinni. Annars vegar eru þeir sem eru komnir með nóg af kvensemi konungs og krefjast þess að hann stígi til hliðar og leyfi dóttur sinni Viktoríu að taka við keflinu. Hins vegar eru þeir sem finnst ekki mikið til þess koma hjá fjölmiðlum að velta sér upp úr einkalífi konungsins. Fyrri hópurinn er háværari. Silvía drottning bar ekki giftingarhringinn síðast þegar til hennar sást á opinberum vettvangi og hefur Magðalena prinsessa frestað ferð sinni heim yfir þjóðhátíðardag Svíþjóðar 6. júni, en hún er búsett í Bandaríkjunum. Enn sem komið er hefur ekki borið á viðbrögðum frá prinsinum Karli Filippusi og krónprinsessunni Viktoríu, en hún gæti þurft að taka við krúnunni af föður sínum fyrr en hún reiknaði með.alfrun@frettabladid.isTekur hún við keflinu? Viktoría krónprinsessa gæti þurft að setjast í stól föður síns fyrr en hana grunaði.
Mest lesið „Þessi Barbie-dúkka horfir ekki á neitt nema spegilinn“ Lífið Jökull og Telma hvort í sína áttina Lífið Hugljúft geimævintýri líður fyrir þreytandi þúsaldarhúmor Gagnrýni Hugarafl er staður þar sem karlmenn fella niður grímuna Lífið samstarf „Fegurð er miklu meira en bara útlit“ Lífið Var sagt að þetta væri „hluti af því að vera kona“ Lífið Stórum hluta kærunnar vísað frá Lífið Hugmyndir að hámhorfi um páskana Bíó og sjónvarp Edrú í sorg: Sonarmissir, á hnefanum og eiginkonan hættir að anda Áskorun „Enginn skömm að því að leita sér hjálpar“ Lífið Fleiri fréttir Jökull og Telma hvort í sína áttina „Þessi Barbie-dúkka horfir ekki á neitt nema spegilinn“ „Fegurð er miklu meira en bara útlit“ Stórum hluta kærunnar vísað frá Íslandsvinurinn Gucci Mane frelsissviptur Birnir á lag ársins Myndaveisla: Hundar og kettir velkomnir síðan árið 2017 „Enginn skömm að því að leita sér hjálpar“ Logi Bergmann spyr fjölmiðlamenn spjörunum úr „Ef þú ert að fara í gegnum helvíti haltu bara áfram“ Páskar: Ef þú mættir velja einhvern til að krossfesta Hvað veistu um… Óskarsverðlaunin? Bubbi, kílómetragjaldið og svikin um boltaland fyrir fullorðna Notaði allar líflínurnar í byrjun þáttarins Hlustendaverðlaunin: Kaleo er flytjandi ársins Páskabingó Blökastsins Úr Brúðkaupsþættinum Já yfir í að þjálfa leiðtoga Bubbi með opna hljómsveitaræfingu í Höllinni „Þá spurði ég hann hvort hann vildi gamla eða nýja ísinn“ Mótefni gegn afmennskun og kúgun Var sagt að þetta væri „hluti af því að vera kona“ Hundrað skvísur blómstruðu saman Er ástin blind? Eru konur ástsjúkari en karlar? Kom gríðarlega stórum hlut í gegnum kleinuhring án þess að skemma hann Förgun bóka áþekk því að lóga gæludýrum Hatari hættir í Þjóðleikhúsinu og breytingar í Borgó Céline Dion snýr aftur á stóra sviðið: „Ég elska ykkur öll og sé ykkur bráðlega“ Hildur Guðnadóttir hátíðarlistamaður 2026 Í bataferli frá fíkninni Ótrúleg saga Rose Dugdale Sjá meira