Stökkbreyttur forleikur og stórbeinótt Kung Fu Panda 2. júní 2011 16:00 James McAvoy og Michael Fassbender í hlutverkum sínum sem Xavier og Magneto, en forleikurinn að X-Men verður frumsýndur um helgina ásamt Kung Fu PandaII.
Stan Lee og Jack Kirby er mennirnir á bak við stökkbreyttu ofurhetjurnar í X-Men. Ásamt Steven Ditko og Bob Kane eru þeir sennilega stóra ástæðan fyrir því að myndasöguhetjur eru fastagestir í kvikmyndahúsum. Nýjasta X-Men verður frumsýnd um helgina. Að þessu sinni er sagan færð aftur um nokkra áratugi og fylgst með uppgangi Xavier og Magneto á sjöunda áratugnum þegar stökkbreytta fólkið fer fyrst að láta á sér kræla. Þetta er fjórða myndin úr X-Men myndasöguflokki Marvel-fyrirtækisins, en menn hafa farið um víðan völl með þennan myndasöguflokk. Fyrsta myndin um stökkbreytta fólkið var frumsýnd árið 2000 og reyndist ákaflega vel heppnuð hasarmynd. Að sjálfsögðu var því farið af stað með framhaldsmynd eins og lög gera ráð fyrir en X-Men: The Last Stand stóðst ekki alveg þær væntingar sem til hennar voru gerðar. Þá var ákveðið að draga út eina vinsælustu persónuna, sjálfan Wolverine, og gefa honum sénsinn, athuga hvort hann gæti ekki grætt einhverja aura. En það gekk ekki alveg eftir og því hafa aðstandendur X-Men ákveðið að beita kunnuglegu bragði; þeir færa söguna aftur til sjöunda áratugarins og kynna fyrir fólki söguna á bak við höfuðóvinina tvo, Xavier og Magneto. Meðal leikara í myndinni eru James McAvoy og Michael Fassbender en leikstjóri er Matthew Vaughn, sem gerði meðal annars Kick-Ass og Layer Cake. Um helgina verður einnig frumsýnd Kung Fu Panda II, sem er framhald af geysivinsælli teiknimynd frá árinu 2008. Myndin segir frá svaðilförum stórbeinóttrar pöndu og baráttu hennar, með nokkrum kung fu brögðum, fyrir réttlætinu og sannleikanum. Kung Fu Panda II er skreytt röddum úr heimi Hollywood-stjarna en meðal þeirra sem tala inn á myndina eru Jack Black, Angelina Jolie, Dustin Hoffman, Gary Oldman, Seth Rogen og Jean-Claude Van Damme. freyrgigja@frettabladid.is
Mest lesið Bríet sviptir hulunni af kærastanum Lífið Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Lífið Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Lífið Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Lífið Haaland hunsaði Holland Lífið „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Lífið Fyrsta lesbían til að prýða Playboy Lífið Fjörutíu básar í garðinum og götumatur frá öllum heimshornum Matur Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Lífið David kemur áhugalausri Victoriu til varnar Lífið Fleiri fréttir Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Bríet sviptir hulunni af kærastanum Fyrsta lesbían til að prýða Playboy „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Haaland hunsaði Holland Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Sjá meira