Miklar matarkröfur Eagles 24. maí 2011 08:00 Kröfulisti hljómsveitarinnar Eagles er gríðarlega langur.
Matarkröfur Eagles fyrir tónleikaferð sína Long Road Out Of Eden eru gríðarlegar samkvæmt lista sem Fréttablaðið komst yfir. Búast má við að íslenskir tónleikahaldarar þurfi að uppfylla einhverjar af þessum kröfum þótt þeir geti eflaust ekki reddað Starbucks-kaffi eins og beðið er sérstaklega um. Ísleifur B. Þórhallsson, sem stendur fyrir tónleikum Eagles, sagðist ekkert vilja tjá sig um kröfur Eagles, þær væru trúnaðarmál. Matarkröfurnar eru jafn strangar og þær eru margar. Mikilvægt er að maturinn sé heilsusamlegur þar sem fólk í föruneyti Eagles er að reyna að hugsa um heilsuna, eins og kemur fram á kröfulistanum á netinu. Öll búningsherbergi verða að vera full af ferskum ávöxtum og grænmeti ásamt nýbökuðu brauði. Mikilvægt er að harðsoðin egg sem verða í boði séu köld, með sprungulausri skurn. Þá verða vínber að vera svo fersk, að þegar þau eru hrist slitna þau ekki úr klasanum. Krafan um ferskleika er ströng, sem kristallast í kröfunni um hágæða safapressur frá annað hvort Juice Man eða Breville. Þeir leyfa sér þó líka að sukka, en Don Henley biður sérstaklega um snakk frá Lays og átta pakka af tyggjói með suðrænu- og piparmyntubragði. Loks þarf allur matur að vera borinn fram á leirtaui, ekki plasdiskum og hnífapörin verða að vera úr silfri. Þeir Glenn Frey, Don Henley, Joe Walsh og Timothy Schmidt gera kröfu um að vera í sérbúningsherbergjum á þeim tónleikastöðum sem þeir spila og þeir leggja þá væntanlega öll búningsherbergin í Laugardalshöll undir sig. Eftir því sem Fréttablaðið kemst næst verður stór bílafloti til taks fyrir þá en einhverjir Eagles-liða hafa á tónleikaferðum sínum notast við einkabílstjóra. Eagles-menn notast einnig við sína eigin kokka á tónleikaferðum sínum og gera má ráð fyrir því að engin breyting verði á því þegar þeir koma til Íslands. Eins og fram hefur komið í Fréttablaðinu mætir einhver hluti starfsfólksins fjórum dögum fyrir tónleikana til að hefja uppsetningu á sviði og hljóðkerfi. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins mæta meðlimir Eagles til landsins á einkaþotu tveimur dögum fyrir tónleikana. Miðasala á þá 200 miða sem eftir eru hefjast á föstudaginn á vefsíðunni midi.is. atlifannar@frettabladid.is
Mest lesið Bríet sviptir hulunni af kærastanum Lífið „Undirstaða Hörpu mun hristast undir hreinum og ómenguðum krafti“ Tónlist Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Lífið „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Lífið Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Lífið Fyrsta lesbían til að prýða Playboy Lífið Haaland hunsaði Holland Lífið Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Lífið Fjörutíu básar í garðinum og götumatur frá öllum heimshornum Matur Sagði Viktoríu Beckham að „fokka sér“ Tónlist Fleiri fréttir Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Bríet sviptir hulunni af kærastanum Fyrsta lesbían til að prýða Playboy „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Haaland hunsaði Holland Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Sjá meira