Boðið á alþjóðlega leiklistarhátíð í Írak 10. júní 2011 11:00 Leiksýningu Þorleifs Arnarssonar, Móðir Hugrekki, hefur verið boðið á fyrstu alþjóðlegu leiklistarhátíðina í Írak.Fréttablaðið/Arnþór
Uppfærslu leikhússins í Konstanz á verki Bertolt Brecht, Móðir Hugrekki, í leikstjórn Þorleifs Arnarssonar hefur verið boðið að taka þátt í fyrstu alþjóðlegu leiklistarhátíðinni í Írak. Hátíðin fer fram í höfuðborg Kúrdistan-héraðsins, Arbil, en Þorleifur sjálfur kemst að öllum líkindum ekki með, þar sem hann hefur mikilvægari hnöppum að hneppa hér heima. „Þetta er sett í sömu viku og ég eignast barn,“ segir Þorleifur í samtali við Fréttablaðið. Verkið fékk mjög sterk viðbrögð þegar það var frumsýnt í Þýskalandi; sumir voru hrifnir og hrósuðu því hástert, aðrir ekki. „Þetta er eitt af höfuðverkum Brechts og gerist í Þrjátíu ára stríðinu. Ég tók hins vegar út allar tilvísanir í það stríð, þannig að þetta virkar sem eilífðarstríð.“ Uppfærslan þykir mjög myndræn, það rignir blóði allan tímann uppi á sviði og leikstjórinn segir að nú sé allt á fullu við að leysa tæknilegar útfærslur. Þorleifur viðurkennir að ekki standi öllum á sama í leikhópnum; tvær af leikkonum verksins séu til að mynda ákaflega smeykar við ferðalagið en ætli þó að láta slag standa. Þorleifur segir valið vera gríðarlega mikinn heiður og kveðst vera spenntur að heyra hvernig íbúar hins stríðshrjáða lands muni taka verkinu. „Kannski mun verkið snerta áhorfendur þarna mjög djúpt og kannski á það bara eftir að hljóma hjákátlega.“- fgg
Mest lesið Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Lífið Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Lífið Haaland hunsaði Holland Lífið „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Lífið Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Lífið David kemur áhugalausri Victoriu til varnar Lífið Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Lífið Ljóðrænt hótel á Akureyri Lífið „Drullið ykkur í burtu“ Lífið Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Lífið Fleiri fréttir Fyrsta lesbían til að prýða Playboy „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Haaland hunsaði Holland Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Sjá meira