Ég hefði átt að deyja 100 sinnum 10. júní 2011 07:30 Líf Ozzy Osbourne hefur verið afar skrautlegt, eins og kemur fram í nýrri heimildarmynd um kappann.
Ný heimildarmynd um myrkraprinsinn Ozzy Osbourne verður frumsýnd á næstunni. Myndin heitir God Bless Ozzy Osbourne, eða Drottinn blessi Ozzy Osbourne, og er framleidd af Jack, syni hans, og eiginkonunni Sharon. Myndin var forsýnd í Bretlandi í vikunni, en í henni er líf Osbourne skoðað í víðu samhengi. Fjallað er um uppvöxt hans í Birmingham ásamt foreldrum, systrum, fyrstu eiginkonunni og börnum. Þá er fjallað um árin í hljómsveitinni Black Sabbath og sólóferilinn. Osbourne talar um eiturlyfja- og áfengisvandamál sín í myndinni og nefnir sérstaklega þegar hann vaknaði á miðri hraðbraut eftir annasamt kvöld. „Ég hefði átt að deyja 100 sinnum en það gerðist ekki,“ segir hann. „Ef einhver vildi að ég gerði eitthvað var nóg að biðja mig um að gera það ekki. Ég man ekki eftir níunda áratugnum. Það er eins og hann hafi ekki átt sér stað!“ Í myndinni talar hinn sextugi Ozzy Osbourne einnig um ökuskírteinið sem hann fékk nýlega. „Þegar allt fór að ganga vel keypti ég byssur, hnífa og mótorhjól. En það er bara í dag sem ég get keyrt bíl!“
Mest lesið Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Lífið Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Lífið Haaland hunsaði Holland Lífið „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Lífið Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Lífið David kemur áhugalausri Victoriu til varnar Lífið Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Lífið Ljóðrænt hótel á Akureyri Lífið „Drullið ykkur í burtu“ Lífið Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Lífið Fleiri fréttir Fyrsta lesbían til að prýða Playboy „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Haaland hunsaði Holland Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Sjá meira