Baltasar kemur sér fyrir í Baker Street 10. júní 2011 07:15 á ferð og flugi Baltasar Kormákur er búinn að koma sér fyrir í London og verður þar, meira eða minna, í allt sumar. Hann er að hljóðvinna Contraband. Fréttablaðið/Anton
Baltasar Kormákur hefur verið á ferð og flugi á þessu ári. Hann bjó í hálft ár í New Orleans þegar tökur á Hollywood-myndinni Contraband stóðu yfir. Svo kom hann heim í sveitasæluna í Skagafirði þar sem kvikmyndin var klippt með Elísabetu Ronaldsdóttur og nú er hann fluttur út aftur, að þessu sinni til London til að sinna eftirvinnslu myndarinnar. „Ég verð hérna meira og minna í allt sumar. Ég er kominn með íbúð rétt hjá höfuðstöðvum Working Title og verð að hljóðvinna myndina í Baker Street þar sem þeir eru með aðstöðu,“ segir Baltasar í samtali við Fréttablaðið. Dvölin á Íslandi var ekki eingöngu nýtt til klippinga heldur notaði leikstjórinn tækifærið og tók nokkra ramma fyrir Contraband hér á landi. „Ég þurfi að taka upp smá skipadót og fékk góða aðstoð frá Eimskip og svo var ég við neðansjávartökur á Þingvöllum. Þær nýtast mér reyndar bæði fyrir Contraband og Djúpið. Maður reynir að koma með alla vinnu sem maður getur hingað heim,“ segir Baltasar en eftirvinnslufyrirtækið Framestore Reykjavik vinnur að myndinni eins og Fréttablaðið hefur greint frá. Contraband skartar stórstjörnunni Mark Wahlberg í aðalhlutverki ásamt Kate Beckinsale, Lukas Haas og Giovanni Ribisi. Myndin er endurgerð á íslensku kvikmyndinni Reykjavik-Rotterdam og segir frá smyglara sem er plataður út í eitt smyglið enn. Contraband verður væntanlega frumsýnd á næsta ári.- fgg
Mest lesið „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Lífið Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Lífið Hvað veistu um... gönguleiðir? Lífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Lífið Eva Rún og Blær hljóta Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur Menning Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Lífið Leiðir skilja hjá leikhúspari Lífið Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Lífið Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Lífið Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Lífið Fleiri fréttir Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks South Park verður South America Kappsmál sett á ís Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Hvað veistu um… textana hans Bubba? Engin ákvörðun tekin um Eurovision þátttöku Sögufrægt verslunarhús til sölu Hélt allsherjar skilnaðarpartý: „Ég er frjáls“ Lést eftir mislukkaða typpastækkun í Taílandi „Brúðkaup aldarinnar“ hjá Önnu Fríðu og Sverri Stjörnulífið: Undir hárlengingum og bótoxi leynist íslenskur karlmaður Eitt allra krúttlegasta mót ársins Ólíkt hafast þeir að forsetarnir fyrrverandi Einn mánuður án áfengis breytti öllu Krakkatía vikunnar: Pöndur, Instagram og Sveppi Augnablikið þegar fréttastofan sjálf varð að frétt Sjá meira