Lífið

Cole selur kjólana

Gefur af sér Cheryl Cole hyggst selja tuttugu kjóla til styrktar góðu málefni. Kjólar frá Herve Leger og Roberto Cavalli verða til sölu.
Gefur af sér Cheryl Cole hyggst selja tuttugu kjóla til styrktar góðu málefni. Kjólar frá Herve Leger og Roberto Cavalli verða til sölu.
Cheryl Cole hefur ákveðið að láta gott af sér leiða og hyggst selja marga af sínum frægustu kjólum á uppboði til styrktar góðu málefni. Cole, sem hefur verið á milli tannanna á fólki í Bretlandi eftir brottreksturinn úr ameríska X-Factor, hefur gefið tuttugu kjóla, en andvirðið rennur í sjóð góðgerðarsamtaka sem bera nafn hennar.

„Ég veit að svona uppboð á kjólum á eftir að safna heilum helling af peningum sem hægt er að nota til góðra verka en ég er líka heppin að eiga marga flotta kjóla sem eiga eftir að nýtast einhverjum öðrum.“ Meðal þeirra eru kjólar frá Herve Leger og Roberto Cavalli auk kjóls úr fatalínu Siennu Miller.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.