Enn má gerast hestamaður 28. nóvember 2011 11:00 „Það er nú einu sinni hrossaræktin sem er drifkrafturinn í greininni,“ segir Hulda G. Geirsdóttir hrossaræktandi.Fréttablaðið/GVA
Þetta er hugmynd sem byggir á eldri bók sem hét sama nafni og Bændasamtökin gáfu út um árabil,“ segir Hulda G. Geirsdóttir sem situr í ritstjórn bókarinnar Hrossaræktin 2011 sem út kom nýverið. „Í nokkur ár hefur þó ekki komið út neitt ársrit um hestamennskuna þar sem greint er frá því sem hæst bar á yfirstandandi ári og margir hafa saknað þess að fá ekki árbók með alls konar skemmtilegu efni til að fletta upp í.“ Hulda og fimm aðrir áhugamenn um hrossarækt tóku sig því saman um að hefja útgáfu slíkrar bókar að nýju. „Í bókinni eru umfjallanir um tíu efstu hross í hverjum aldursflokki yfir landið, skrá yfir öll hross sem fengið hafa afkvæmaverðlaun, umfjöllun um landsmót og heimsmeistaramót, viðtöl, tölfræðigreinar og úttektir á ýmsum málum þannig að það má segja að þetta sé samantekt á öllu því sem skiptir einhverju máli varðandi hrossaræktina á yfirstandandi ári.“ Hulda segir fyrstu viðbrögð við bókinni hafa verið mjög góð og fullur áhugi sé á því að útgáfa slíks rits verði árlegur viðburður. „Ég vona að við höfum úthald og kraft í það að halda áfram að gefa út svona rit og kannski eitthvað fleira,“ segir hún. Bókin er mjög vönduð að allri gerð og Hulda segir það hafa verið ákveðið strax í upphafi að vanda til verka þótt það kostaði sitt. „Okkar kostnaðaráætlanir miða ekki við neinn sérstakan gróða,“ segir hún. „Það er miðað við það að koma út nokkurn veginn á sléttu og við höfum fulla trú á því að það takist. Það er gífurlegur áhugi á hrossarækt í landinu og við finnum það á viðbrögðunum að fólk kann að meta þetta framtak.“ Útgefandi bókarinnar er Hrossarækt ehf., félagsskapur sem stofnaður var á síðasta ári, hefur gefið út stóðhestatal og heldur úti vefsíðunni stodhestar.com. Mikið hefur verið rætt um það að undanförnu að hestamennska sé orðin svo dýrt sport að einungis betur stætt fólk hafi efni á að stunda hana. Hulda segir hana vissulega vera dýra en það séu þó ýmsar leiðir til að komast í tæri við hesta án þess að leggja út í mikinn kostnað. „Það er hægt að koma að þessu frá svo mörgum hliðum. Þú þarft ekki að byrja með allt í botni til þess að geta verið hestamaður. Það er ýmislegt í boði fyrir þá sem hafa áhuga. Mörg fyrirtæki bjóða bæði upp á reiðnámskeið og að taka hest í fóstur þannig að þú fáir ákveðinn hest sem þú kemur að heimsækja og sinnir. Það er sem betur fer enn þá til gott fólk í heiminum sem tekur við áhugasömum krökkum og styður þá og leyfir þeim að vera með sér í þessu. Auðvitað er það þannig með allt sport sem krefst ákveðins búnaðar að það kostar sitt, en ég held það sé enn þá hægt að verða hestamaður á Íslandi ef nægur áhugi er fyrir hendi. Tala nú ekki um að gerast hrossaræktandi. Það byrjar bara í hjartanu og svo vinna menn sig þaðan. Það er nú einu sinni hrossaræktin sem er drifkrafturinn í greininni. Það sem keyrir markaðinn og útflutninginn áfram er þessi mikli áhugi á ræktun.“ fridrikab@frettabladid.is
Mest lesið Konur að fæða börn á bakinu ... fyrir karlmenn Áskorun „Það er enginn að fara senda þig í stríð“ Lífið Ólétt af fyrsta barni ári eftir andlát fyrrverandi Bíó og sjónvarp Björk treður upp í Hafnarfirði í sumar Tónlist Rúrik í næstvinsælustu Netflix mynd í heimi Bíó og sjónvarp Eftir á fyndið að vera stönguð niður af kind Lífið Euphoria stjörnurnar gáfu ekkert eftir Tíska og hönnun Furðubandið sem tryllti netið Lífið The Streets koma fram á Iceland Airwaves Lífið Móðir drengs í ofbeldissambandi opnar sig Lífið Fleiri fréttir Söfnuðu kleinuhringjum ofan í fötu með skrautlegri aðferð Algengur misskilningur að hávært fólk sé með mesta sjálfstraustið The Streets koma fram á Iceland Airwaves „Það er enginn að fara senda þig í stríð“ Aflýsa Wireless eftir að Kanye var meinað að fara til Bretlands Mos Def kemur fram í Gamla Bíó í maí Eftir á fyndið að vera stönguð niður af kind Ráðherrabarn komið í heiminn Furðubandið sem tryllti netið Móðir drengs í ofbeldissambandi opnar sig Offset skotinn við spilavíti í Flórída „Ekki óttast mistök, en vertu skíthrædd við eftirsjá“ Ye á Wireless: Styrktaraðilar hætta við og forsætisráðherrann blandar sér í málið Stjörnulífið: „Sannleikurinn er sexí“ Skagarokk: Boða til Black Sabbath messu og tónlistarveislu næstu helgi Ákváðu að gifta sig strax þegar ljóst var að tíminn væri naumur „Við erum öll nóg“ „Sjálfsvinna er ævistarf“ „Þetta var morðingi frænda míns, bara alvöru morðingi“ „Þetta gekk eins og í lygasögu“ „Ég hélt að ég væri hreinlega að deyja“ „Ég ræð ferðinni“ Jökull og Telma hvort í sína áttina „Þessi Barbie-dúkka horfir ekki á neitt nema spegilinn“ „Fegurð er miklu meira en bara útlit“ Stórum hluta kærunnar vísað frá Íslandsvinurinn Gucci Mane frelsissviptur Birnir á lag ársins Myndaveisla: Hundar og kettir velkomnir síðan árið 2017 „Enginn skömm að því að leita sér hjálpar“ Sjá meira