Fótbolti

Tap í fyrsta leik Alfreðs með Lokeren

Jón Júlíus Karlsson skrifar
Alfreð Finnbogason.
Alfreð Finnbogason.
Alfreð Finnbogason lék sinn fyrsta leik með Lokeren í belgísku úrvalsdeildinni í tapi liðsins gegn Gent á útvelli í kvöld, 2-1.

Alfreð kom inn á sem varamaður þegar átta mínútur voru eftir af leiknum í stað Benjamin Mokulu. Gent komst í 2-0 með mörkum frá Yaya Soumahoro og Christophe Lepoint í upphafi leiks áður en Nill De Pauw minnkaði muninn á 26. mínútu.

Lokeren er í 5. sæti belgísku deildarinnar með 35 stig í tuttugu leikjum. Alfreð kom til liðsins frá Íslandsmeisturum Breiðabliks í sumar.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×