Bubbi syngur inn jólin á Akureyri 18. nóvember 2011 08:00 Bubbi Morthens heldur Þorláksmessutónleika fyrir norðan hinn 21. desember. Þeir verða með sama sniði og sömu uppröðun og hinir eiginlegu Þorláksmessutónleikar í Háskólabíói.Fréttablaðið/Stefán „
Ég var að spila fyrir norðan í vor og þá kom sægur af fólki og kvartaði undan því að það kæmist aldrei á Þorláksmessutónleikana mína, það gæti aldrei farið suður á þessum árstíma því það væri svo erfitt. Þannig að ég settist yfir dæmið og velti því fyrir mér hvort og hvernig ég gæti komið til móts við þetta fólk. Og komst að þeirri niðurstöðu að ég gæti haldið Þorláksmessutónleikana tveimur dögum fyrr fyrir norðan,“ segir Bubbi Morthens. Árlegir Þorláksmessutónleikar hans eru fastur liður í jólahaldi margra og þeir verða á sínum stað í Háskólabíói hinn 23. desember. Bubbi ætlar hins vegar að halda ámóta tónleika í menningarhúsi Norðlendinga, Hofi, hinn 21. desember. „Þeir verða í sama formi og það verður svipuð uppröðun laga,“ segir hann og vonast til að sem flestir íbúar Norðurlands láti sjá sig. Hins vegar runnu á Bubba tvær grímur þegar rifjað var upp ársgamalt viðtal við hann, en þar sagðist hann einmitt vera orðinn svolítið lúinn á aðfangadag þegar öllu tónleikahaldi væri lokið. „Ég reyni yfirleitt að leggja mig með börnunum í klukkutíma,“ sagði hann fyrir ári. „Ég var eiginlega búinn að gleyma öllu þessu stússi en þetta verður allt í lagi, ég er í góðu formi, reima á mig hanskana á hverjum morgni og kýli og líkaminn og hjartað virðast vera í lagi,“ segir Bubbi í dag. Tónlistarmaðurinn virðist í feiknaformi, hann gefur út veiðibók fyrir jólin og er á leiðinni í hljóðver eftir tíu daga til að taka upp nýja plötu. Hann kýs að lýsa sjálfum sér sem duglegum, ekki ofvirkum. „Þetta verður svona týpísk Bubbaplata, ballöður og mikið gítarspil.“ - fgg
Mest lesið Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Lífið Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Lífið Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Lífið Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Lífið Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Lífið „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Lífið Joanna Pettet er látin Bíó og sjónvarp Björk og Yara nýtt par Lífið Niðurgangur, æla og nóg af pungspörkum Gagnrýni Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta Lífið Fleiri fréttir Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Sjá meira