Glerhjúpur Hörpunnar: Greiðslur til Ólafs Elíassonar eru leyndarmál Erla Hlynsdóttir skrifar 17. mars 2011 18:45
Ekki fæst uppgefið hvað Portus greiðir Ólafi Elíassyni fyrir hönnun á glerhjúp tónlistar- og ráðstefnuhússins Hörpu. Stjórnarformaður Portusar segir ástæðuna vera trúnaðarákvæði í samningi við Ólaf. Heildarefniskostnaður við glerhjúp Hörpunnar er rúmir þrír milljarðar króna. Ekki er óalgengt að hönnunarkostnaður við slíka byggingu sé tíu prósent, og jafnvel tuttugu prósent af heildarkostnaði. Þannig má reikna með að Ólafur Elíasson hafi fengið hundruð milljóna króna fyrir hönnunina. Hvað fær Ólafur Elíasson greitt fyrir hönnun á glerhjúpnum? „Því miður. Ég get ekki sagt þér frá því, því það var gerður samingur við Ólaf Elíasson 2006, það var Portus sem þá var með aðra eigendur en er í dag, og í samningnum er ákvæði um trúnað," segir Pétur J. Eiríksson, stjórnarformaður Portusar. Vegna þessa segir Pétur að honum sé ekki heimilt að upplýsa hvað Ólafur fær greitt. Portus var á þessum tíma í eigu Nýsis og Landsbankans. Eigendur Portusar nú eru hins vegar íslenska ríkið og Reykjavíkurborg. Finnst þér ekki óheppilegt að það sé ekki hægt að upplýsa um þetta atriði? „Jú, auðvitað er það það, og við myndum kannski ekki gera svona samning í dag," segir Pétur. Hann telur líklegt að ákvæði um trúnað hafi verið sett inn í samninginn til að verja samningsstöðu Ólafa gagnvart öðrum kaupendum verka hans. „Við verðum bara að virða hann þó það séu komnir nýir eigendur," segir Pétur. Þannig getur Portus ekki upplýst um endanlegan kostnað við glerhjúpinn, þar sem hönnunarkostnaður er alltaf undanskilinn. „Við getum ekki gert það einhliða en ef Ólafur Elíasson myndi vilja gera það þá hefði hann okkar heimild," segir Pétur.
Mest lesið „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Innlent Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Innlent Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Innlent Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin Innlent Herinn sé reiðubúinn að tortíma Íran verði Trump ráðinn af dögum Erlent „Ef þú ætlar austur verður þú að fara Norðurleiðina“ Innlent Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Innlent Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Innlent Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Veður Fleiri fréttir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara Norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Hryðjuverkamálið, Landsmót hestamanna og neytendur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir handtöku „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Flýtir afgreiðslu um allt að mánuð „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ „Við skulum ekki láta grípa okkur með buxurnar á hælunum þetta árið“ Ungir síbrotamenn, eldur í Bryggjuhverfinu og andstæður í veðrinu „Við skírðum hana Halla Sykurvatn Tómatsósudóttir“ Eldur í Bryggjuhverfi Jarðböðin við Mývatn opin á nýjan leik „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Vegagerðin varar við vindi Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Sjá meira