Tengsl milli bólusetningar og drómasýki Hugrún Halldórsdóttir skrifar 7. maí 2011 19:00
Tengsl eru á milli svínaflensubólusetningar og drómasýki hjá ungmönnum í Finnlandi. Hér á landi hefur tilfellum sýkinnar fjölgað en orsökin eru ókunn. Drómasýki er taugasjúkdómur sem veldur ýmsum svefntruflunum en fimmtíu ungmenn voru greind með sjúkdóminn í Finnlandi í fyrra. Þau höfðu öll verið bólusett gegn svínaflensu með sama bóluefni sem hefur verið notað hér á landi að nafni Pandemrix. Venjulega greinast þrjú tilfelli á ári þar í landi og hefur fjölgun þeirra vakið mikla athygli. Tilfellum hefur einnig fjölgað í Svíþjóð, en þeim hefur þó fjölgað hlutfallslega mest á Íslandi. Þórólfur Guðnason, yfirlæknir á Sóttvarnasviði segir fimm ungmenni hafa greinst með drómasýki hér á landi í fyrra sem er óvenjumikið. Þrjú voru bólusett gegn flensunni. „Það er ekki hægt að sjá marktæk tengsl við bólusetninguna hér þannig að það er eitthvað annað sem skýrir þessa aukningu hér. En á öðrum löndum, t.d. í Finnland. Já í Finnlandi hefur sést mikil aukning á Drómasýki hjá ungu fólki og þar eru klár tengsl við bólusetninguna. Það hefur ekki sést aukning í Noregi eða Danmörku en minni aukning í Svíþjóð," segir Þórólfur. Þessi töluverða fjölgun og óljósu tengsl hafa hvatt mörg Evrópuríki til aðgerða. Sóttvarnalæknir er þátttakandi í alþjóðlegri rannsókn þar sem orsakir verða kannaðar og er niðurstöðu að vænta í sumar. „Já þetta er dularfullt mál eins og mál eru oft í læknisfræði en það þarf að rannsaka þetta og komast til botns í þessu," segir Þórólfur.
Mest lesið Íslendingar handteknir á Spáni með mikið magn fíkniefna Innlent Lalli Johns er látinn Innlent Láta bandarískan gísl lausan Erlent Sker upp herör gegn kínverskum netrisum Innlent Íslenskur morðingi í Bandaríkjunum: „Gerðu það pabbi, ekki gleyma mér“ Innlent Afnám virðisaukaskatts geti skilað björgunarsveitum fúlgum fjár Innlent „Eiga sína síðustu daga í faðmi ástvina undir hamraslætti og múrborum“ Innlent Ein staða fornleifafræðings eftir á Þjóðminjasafninu Innlent Vilja leggja réttarríkið til hliðar Erlent Icelandair hættir rekstri stærstu flugvéla sinna Innlent Fleiri fréttir Íslendingar handteknir á Spáni með mikið magn fíkniefna Lalli Johns er látinn Afnám virðisaukaskatts geti skilað björgunarsveitum fúlgum fjár Ein staða fornleifafræðings eftir á Þjóðminjasafninu Sker upp herör gegn kínverskum netrisum Aðgerðir gegn Temu og Shein, hraðbanki í hættu og þreyttir hlaupagarpar í beinni „Eiga sína síðustu daga í faðmi ástvina undir hamraslætti og múrborum“ Mótorhjólasamtök aðstoða börn sem hafa orðið fyrir ofbeldi Hækka þurfi veiðigjald í skrefum 230 íbúðir í byggingu í Þorlákshöfn Vopnahlé og í beinni frá Basel og Öskjuhlíð Björgunarsveitir vilja undanþágu frá virðisaukaskatti Gasa, veiðigjöld, gagnaleki og kolefni í Sprengisandi Starfsmaður verslunar sleginn Einn fluttur á sjúkrahús vegna reykeitrunar „Vandræðalegt“ að stjórnin hafi ekki mannað eigin þingfund Icelandair hættir rekstri stærstu flugvéla sinna Veittu eftirför í Árbæ Nýtt íslenskt hundaleikfang slær í gegn „Hreint og tært málþóf í sinni skýrustu mynd“ Veiðigjöld, vopnahlé og veðurblíða í bakgarðshlaupi Lengstu fyrstu umræðu í sögu Alþingis lokið Fundu, lögðu hald á og drápu snáka Efnahags- og viðskiptanefnd taki fyrir „tvöföldun á skatti“ Samningurinn nauðsynlegur og ekkert athugavert við hann Samningur saksóknara, þras á Alþingi og bakgarðshlaup í blíðunni Lögreglan á Suðurlandi rannsakar gagnastuldinn Tók málin í eigin hendur og opnar dagforeldravef Skjálfti upp á 3,1 við Herðubreið Sérstakur saksóknari gerði samning við PPP Sjá meira