Samdi lag fyrir 100 milljónir 10. febrúar 2011 07:00 „
Þetta er í rauninni stærra en að spila á Wembley, þannig séð," segir tónlistarmaðurinn Birgir Hilmarsson. Lag hans hljómaði í nýrri auglýsingu farsímafyrirtækisins Motorola sem var sýnd í hálfleik Super Bowl fótboltaleiksins í Bandaríkjunum um síðustu helgi. Talið er að um 105 milljónir áhorfenda hafi séð auglýsinguna. Birgir, sem er einnig liðsmaður hljómsveitarinnar Ampop, fékk verkefnið í gegnum umboðsmann sinn sem starfar hjá tónlistarfyrirtæki í New York. „Ég held að fjöldinn allur af tónskáldum hafi verið að keppast um þetta. Ég datt í lukkupottinn í þetta skiptið," segir Birgir, sem hefur verið búsettur í London undanfarin ár. „Þetta var rosa rússíbanareið. Ég gerði upphaflega tvö verk fyrir þessa auglýsingu en ákvað þá að velja aðra pælingu sem er mínimalískt píanóverk. Ég lagði rosapúður í það en þá fékk ég allt í einu símtal um að Motorola vildi það ekki," segir Birgir. Þá ákvað hann að nota útgáfu sem hann átti af lagi sem kom út á plötunni Cinematic Songs sem kom út á netinu í fyrra og það hitti í mark hjá Motorola. Birgir hefur fengið mikla athygli á Youtube fyrir lagið sitt og komst það í 10. sæti í Bretlandi yfir þau vinsælustu á síðunni í gær. Hann á þó enn eftir að fá borgað frá Motorola. „Það eru enn samningaviðræður í gangi. Ég er með mína umboðsmenn í því." Hægt er að horfa á auglýsinguna hér fyrir ofan. Einnig á heimsíðu Birgirs, biggihilmars.com. - fb
Mest lesið Skipta um stríðsguð vegna alvarlegra meiðsla Bíó og sjónvarp Franskt draumabrúðkaup eins og beint úr ævintýri Lífið Grafalvarlegt nýtt efni: „Jafn tilgangslausar og að selja flugelda inni í helli“ Tónlist Von á tíu nýjum lögum tíu árum eftir andlátið Tónlist Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Lífið Brjálaðar boltamömmur berjast Bíó og sjónvarp Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Lífið Bríet sviptir hulunni af kærastanum Lífið „Undirstaða Hörpu mun hristast undir hreinum og ómenguðum krafti“ Tónlist Stytta af Charlie Kirk á Times Square Lífið Fleiri fréttir Franskt draumabrúðkaup eins og beint úr ævintýri Stytta af Charlie Kirk á Times Square Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Bríet sviptir hulunni af kærastanum Fyrsta lesbían til að prýða Playboy „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Haaland hunsaði Holland Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Sjá meira