Frægur leikstjóri á leið til Grundarfjarðar 16. janúar 2011 09:30 Hér má sjá leikstjórann Romain Gavras ásamt söngkonunni M.I.A. Hann verður í dómnefnd á Northern Wave-kvikmyndahátíðinni. Dögg Mósesdóttir, framkvæmdastjóri hátíðarinnar, en ánægð með þátttöku hans. nordicphotos/getty
Franski leikstjórinn Romain Gavras verður gestur og dómari á Northern Wave-kvikmyndahátíðinni sem haldin verður í Grundarfirði fyrstu helgina í mars. Gavras hefur unnið með ýmsum þekktum tónlistarmönnum og leikstýrði meðal annars hinu umdeilda myndbandi söngkonunnar M.I.A. við lagið Born Free. Auk þess hefur hann unnið með bresku hljómsveitinni The Last Shadow Puppets og hinni vinsælu danssveit Justice. Gavras þykir mjög efnilegur kvikmyndagerðarmaður og hefur frægðarsól hans risið hratt undanfarin ár. Hann er einnig sonur gríska leikstjórans Costa-Gavras, sem er þekktastur fyrir kvikmyndina Z, og hefur því ekki langt að sækja hæfileikana. Dögg Mósesdóttir, framkvæmdastjóri Northern Wave, segist mjög ánægð með þátttöku Gavras enda sé hún mikill aðdáandi verka hans. „Mér datt í hug að athuga hvort hann hefði áhuga á að koma og taka að sér að dæma þau tónlistarmyndbönd sem taka þátt í ár. Hann tók mjög vel í boðið og situr því bæði í dómnefnd og verður með fyrirlestur á hátíðinni,“ segir Dögg og bætir við: „Þetta er í annað sinn sem franskur leikstjóri er í dómnefnd hjá okkur. Sá fyrri endaði á því að taka upp heila kvikmynd hér á landi eftir dvölina hér og sú var meðal annars sýnd á kvikmyndahátíð í Feneyjum. Það verður spennandi að sjá hvort heimsókn Romains verði honum líka innblástur.“- sm
Mest lesið Glímdi við kaupfíkn og fór í gjaldþrot: „Það kemur alltaf að skuldadögum“ Lífið Eyddi öllu út beint eftir Ofurskálina Lífið Gullin regla að sýna ekki allt hold í einu Tíska og hönnun Krakkaskaup fyrir fullorðna Gagnrýni Fimm frækin fylltu Landsbankahúsið Menning Seldu upp og undirrituðu samning til 666 ára Menning „Þetta er erfiðasta mýta sem næringarfræðin hefur þurft að díla við lengi“ Lífið „Ný sýn, nýr heimur“ Menning Er óeðlilegt að gift fólk frói sér? Lífið Stjörnulífið: „Já, ég er klámfíkill“ Lífið Fleiri fréttir „Þetta er erfiðasta mýta sem næringarfræðin hefur þurft að díla við lengi“ Glímdi við kaupfíkn og fór í gjaldþrot: „Það kemur alltaf að skuldadögum“ Eyddi öllu út beint eftir Ofurskálina Brynja Dan og Jóhann selja slotið eftir breytingar Listapör, dansfjölskylda og rjómi senunnar á Garðinum Fram, fram, framakonur Maturinn í Ofurskálinni: Vængirnir étnir í tonnatali Glæsilegustu bollur landsins ruku út Svona var hálfleiksatriði Bad Bunny: „Guð blessi Ameríku“ Úr Eurovision í jógað: „Var ekki nógu góð við sjálfa mig eftir þetta“ Quang Le „virkilega indæll og mjög næs náungi“ Stjörnulífið: „Já, ég er klámfíkill“ Er óeðlilegt að gift fólk frói sér? Prinsinum hafi verið hent út á miðnætti Hamilton ætlar ekki að bruna Tímabilið sem flestir vilja gleyma Festist í lyftu í New York Að vera neitað um listamannalaun reyndist algjör frelsun Krakkatía vikunnar: Fáni, Esbjerg og Ormstunga Þúsund hlauparar í stuði í Norðurljósahlaupi ON Söngvari 3 Doors Down látinn „Ég er pottþétt ekki á leiðinni til Íslands“ Alma stolt af syninum Hitnar í kolunum hjá Heated Rivalry-stjörnum? Mótorhjól eru bönnuð í Grænlandi Gerði leigusamning við krabbameinið Fréttatía vikunnar: Framsókn, Epstein-skjölin og Dagur Sig Tæplega 28 þúsund í mat á mánuði: „Hvar voru þið að svindla?“ Karlmennskan rís úr öskunni Sjö dýrustu eignirnar sem seldust árið 2025 Sjá meira