Lífið

Brostu breitt á frumsýningu Glee-kvikmyndarinnar

Mikið var um dýrðir þegar kvikmyndin Glee: The 3D Concert Movie var frumsýnd í Los Angeles í vikunni.

Sjónvarpsþátturinn Glee hefur notið mikilla vinsælda áhorfenda og kemur það því fáum á óvart að hann ratar á hvíta tjaldið. Aðalleikarar þáttanna á borð við Lea Michele, Cory Monteith, Chris Golfer og Dianna Agron skörtuðu sínu fegursta.

Einnig var söngkonan Rebecca Black mætt í skærbleikum kjól en hún sló í gegn í vor með lagið Friday. Gestir brostu sínu breiðasta á rauða dreglinum og mikil ánægja var með söngvamyndina.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.