Sigursveit Músíktilrauna semur við Record Records 3. febrúar 2011 16:00
Hljómsveitin Of Monsters and Men hefur gert útgáfusamning við Records Records. Upptökur á fyrstu plötunni hefjast í lok mars. „Ég er mjög ánægður. Ég hef fulla trú á þessu bandi," segir Haraldur Leví Gunnarsson hjá Record Records sem hefur gert útgáfusamning við hljómsveitina Of Monsters and Men. Sveitin, sem spilar huggulegt þjóðlagapopp, vann Músíktilraunir í fyrra og hefur síðan verið að semja lög á sína fyrstu plötu. Upptökur hefjast í lok mars undir stjórn Arons Þórs Arnarssonar í Stúdíó Sýrlandi í Vatnagörðum og verður platan mestmegnis tekin upp lifandi. Aron Þór hefur unnið með flytjendum á borð við Gus Gus, Leaves og Trabant og er því reynslumikill í þessum upptökubransa. „Þetta er að mínu mati ein áhugaverðasta hljómsveitin á Íslandi í dag. Ég hef fulla trú á að þau muni „meika" það annars staðar en hér," segir Haraldur Leví um nýjustu skjólstæðinga sína. Spurður hvort hann hafi gengið lengi á eftir sveitinni segir hann: „Við erum búin að vera í samræðum í smá tíma en vorum að ganga frá þessu núna. Það var ekki ástæða til að ganga frá þessu fyrr því þau voru ekki tilbúin með plötu." Söngkonan Nanna Bryndís Hilmarsdóttir er að sjálfsögðu ánægð með stöðu mála. „Það er gaman að þetta skuli vera að gerast," segir hún og viðurkennir að draumur frá því í barnæsku hafi ræst með útgáfusamningnum. Of Monsters and Men fékk hljóðverstíma í verðlaun fyrir sigurinn í Músíktilraunum en þeir hafa þegar verið notaðir. „Við tókum upp lítinn kynningardisk sem við dreifðum á Airwaves-hátíðinni," segir Nannna og er mjög spennt fyrir væntanlegum upptökum. Platan er væntanleg í júní og þangað til verður hljómsveitin í pásu frá tónleikahaldi til að geta einbeitt sér enn frekar að lagasmíðum. freyr@frettabladid.is
Mest lesið Fundu hvor aðra á ný eftir erfiða reynslu Lífið Elegans í hæstu hæðum í fimmtugsafmæli ársins Lífið Stjörnulífið: „Heppnasta stelpa allra tíma“ Lífið Seyfried syrgir Finn sinn Lífið Japanskir sjóliðar troða upp fyrir utan Hörpu Lífið Edda Falak og Kristján Helgi selja íbúð í 101 Lífið „Maður getur ekki falið sig á sama hátt þegar allt hárið er farið“ Lífið Gosling verður Skrattakollur Bíó og sjónvarp Einar Örn og Birna selja einbýlishúsið Lífið Optical Studio með vinsælan Pop Up markað með allt að 70% afslætti Lífið samstarf Fleiri fréttir Japanskir sjóliðar troða upp fyrir utan Hörpu Edda Falak og Kristján Helgi selja íbúð í 101 Seyfried syrgir Finn sinn Elegans í hæstu hæðum í fimmtugsafmæli ársins Stjörnulífið: „Heppnasta stelpa allra tíma“ Fundu hvor aðra á ný eftir erfiða reynslu Emma Roberts gengin í það heilaga „Maður getur ekki falið sig á sama hátt þegar allt hárið er farið“ Krakkatía vikunnar: Rottur, froða og þyrnihrós Einar Örn og Birna selja einbýlishúsið Ekki ósanngjarnt gagnvart sjálfri sér heldur börnunum Vilja láta svipta ekkju leikarans yfirráðum yfir dánarbúinu Gagnrýni á John Snorra ómálefnaleg og slitin úr öllu samhengi Fréttatía vikunnar: Infantino, hvítt efni og svikahrina Diddy í einangrun eftir slagsmál við samfanga Chris Brown játaði ofbeldisfulla hegðun Afþakkaði milljón Bandaríkjadala fyrir eitt uppistand Upplýsingafulltrúar sem flúðu fréttirnar Fyrrverandi mágkonur selja til að kaupa „draumakommúnu“ Biðst afsökunar á óviðeigandi sketsi með sautján ára Stodden „La La Höndin“ úr sögunni Úlfar dauðvona en líður ljómandi vel Hvað veistu um… Mosfellsbæ? Olivia Rodrigo hljóp í rigningunni og keypti sér plötur Elín Hall opnar sig um brjóstaminnkunina Enn eitt barnið vill losna við Pitt-nafnið „Svo setti hann á sig sítrusilminn og þá máttu jólin koma“ Barnastjarnan Kaylee Hottle látin „Ég ætla snemma að sofa, því ég er dauðþreyttur“ Robbie Williams útskýrir dularfulla hvíta efnið Sjá meira