Framfarir í tækni kalla á öflugra net 12. júlí 2011 04:00 Farsímar í dag eru nær því að vera smátölvur. N8-farsíminn frá Nokia er með 12 megadíla myndavél. Öflugt gagnaflutningsnet þarf til að senda myndir í þvílíkri upplausn á milli farsíma eða í tölvur.
Fréttaskýring Hvað er þetta 4G-farsímanet? Farsímafyrirtækin Nova og Síminn hafa sótt um heimild til Póst- og fjarskiptastofnunar (PFS) til að prófa innleiðingu á því sem kallað hefur verið fjórða kynslóð í gagnaflutningstækni. Vodafone fylgist grannt með þróun mála. „Þessi tækni mun að sjálfsögðu ryðja sér til rúms hérlendis líkt og annars staðar. Við fylgjumst mjög vel með þróuninni og erum í góðu sambandi við Vodafone erlendis, sem þegar er kominn með tæknina í rekstur. Íslendingar munu njóta góðs af þeirri reynslu þegar þar að kemur," segir Kjartan Briem, framkvæmdastjóri tæknisviðs Vodafone. Heilmikil þróunKjartan BriemÞeir forsvarsmenn símafyrirtækjanna sem Fréttablaðið hefur rætt við segja þau skref sem stigin voru með þriðju kynslóð í gagnaflutningstækni hafa verið svar við kröfu um aukna möguleika í þráðlausum lausnum. Það sama eigi við um uppfærslu í fjórðu kynslóð í gagnaflutningstækni. Það er stigið vegna snarprar þróunar í nettengjanlegum tækjum og tólum síðustu misserin, svo sem með tilkomu öflugra snjallsíma, þráðlausra nettölva og spjaldtölva, og kallar á aukna burðargetu kerfisins svo hægt sé að flytja mikið magn gagna á milli tækja. Þriðja kynslóðin í fjarskiptatækni var kynnt til sögunnar úti í hinum stóra heimi í kringum síðustu aldamót. Það ræður við í kringum sjö til fjórtán megabæta gagnasendingar á sekúndu. Kerfið gerði þeim sem áttu farsíma með netvafra og önnur nettengjanleg tæki kleift að rápa um netið auk þess sem sækja mátti og senda myndir á milli tækja í hærri upplausn en áður og hljóðskrár af miklum gæðum. Þá gerði þriðja kynslóðin í farsímatækni fólki kleift að horfa næsta hnökralaust á sjónvarpsfréttir í farsímum og tölvum tengdum þráðlaust við gagnaflutningsnetið. Með fjórðu kynslóðinni í gagnaflutningstækni er stigið enn eitt skrefið. Það ber um tífalt meira gagnamagn en forverinn, allt frá hundrað til þúsund megabæta á sekúndu. Eftirspurn skoðuð í sumarLiv BergþórsdóttirEkki liggur fyrir hvernig staðið verður hér að uppbyggingu og tíðniúthlutun fjórðu kynslóðarinnar í gagnaflutningstækni. Þegar uppbygging 3G-netsins var boðin út á sínum tíma voru gerðar miklar útbreiðslukröfur og þurftu tíðnirétthafar að skuldbinda sig til að byggja kerfið upp í mörgum smærri byggðarlögum í öllum kjördæmum landsins. Í öðrum löndum voru tíðnir boðnar upp, svo sem í Þýskalandi. Sá galli fylgdi gjöf Njarðar að sá fékk tíðnina sem hæst bauð í hana. Kostnaðurinn lenti á herðum neytenda sem urðu að greiða háar fjárhæðir til að nýta sér tæknina. Kostnaðurinn hefur minnkað talsvert síðan þá. Póst- og fjarskiptastofnun (PFS) ætlar í sumar að efna til opins samráðs um tíðnistefnu PFS. Þar verður jafnframt kannað hversu mikill áhugi er hjá fjarskiptafyrirtækjunum á næstu kynslóð í fjarskiptatækni. jonab@frettabladid.is
Mest lesið Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla Innlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Innlent Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Innlent Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Innlent Óvenjulegu tímabili að ljúka Innlent „Við búum í brjáluðum heimi“ Erlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Fleiri fréttir „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Sjá meira