Lífið

Yngri systirin eftirsótt

Leikkonurnar Elle og Dakota Fanning sjást hér í fallegum kjólum frá Alexander McQueen en þrátt fyrir að vera aðeins 13 ára gömul er Elle eitt vinsælasta andlitið í Hollywood.Nordicphotos/getty
Leikkonurnar Elle og Dakota Fanning sjást hér í fallegum kjólum frá Alexander McQueen en þrátt fyrir að vera aðeins 13 ára gömul er Elle eitt vinsælasta andlitið í Hollywood.Nordicphotos/getty
Hin 13 ára gamla Elle Fanning er á góðri leið með verða eftirsóttasta andlit Hollywood en hún er yngri systir leikkonunnar Dakota Fanning.



Hún stal senunni á nýafstaðinni tískuviku í París þar sem hún blómstraði á fremsta bekk með tískuljósmyndaranum Mario Testino, leikkonunni Diane Kruger og öðrum stórum nöfnum innan tískubransans. Hún er einnig andlit auglýsingarherferðar tískurisans Marc Jacobs fyrir komandi haust og vetur. Þar með er Elle Fanning að feta í fótspor eldri systur sinnar sem einu sinni var andlit Marc Jacobs. Það er því óhætt að segja að Fanning-systur taki tískuheiminn með trompi.

Elle Fanning hefur þrátt fyrir ungan aldur leikið í fjölmörgum frægum bíómyndum og nú má sjá hana í myndinni Somewhere eftir Sofiu Coppola. Einnig hefur hún leikið í myndunum Babel og The Curious Case of Benjamin Button.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.