Svikahrappur kynntist fórnarlambi í árekstri 14. júlí 2011 08:45 Fjöldi manns afhenti manninum háar fjárhæðir.
Karlmaður á sextugsaldri, sem sætt hefur rannsókn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, er grunaður um að hafa haft yfir hundrað milljónir af fólki með svikum og prettum. Fórnarlömbunum kynntist hann með ýmsum hætti. Til dæmis kynntust einn brotaþolinn og svindlarinn þegar bílar þeirra rákust saman. Maðurinn var handtekinn í apríl á síðasta ári, eins og Fréttablaðið hefur áður greint frá. Handtakan átti sér stað í kjölfar fjölda tilkynninga um vafasamt hátterni hans. Maðurinn, sem var bæði tekjulaus og gjaldþrota, var grunaður um að hafa ítrekað haft fé af fólki með blekkingum en við skoðun á bankareikningum hans aftur í tímann mátti sjá mikla fjármuni fara þar um. Hann sat í gæsluvarðhaldi í sex vikur en fyrir handtökuna hafði ítarleg rannsókn þegar farið fram. Meðan á varðhaldinu stóð voru margir kallaðir í skýrslutökur en fórnarlömbin skiptu tugum. Fólkið afhenti honum tugi milljóna gegn loforði um góða ávöxtun, oftast tengda gjaldeyri. Einhverjir fengu eitthvað greitt til baka en endurgreiðslurnar virðast hafa verið fjármagnaðar með fjármunum frá öðrum fórnarlömbum mannsins. Eins og Fréttablaðið hefur greint frá var sami maður náðaður af heilsufarsástæðum fyrir um tíu árum og þurfti því ekki að afplána tuttugu mánaða fangelsi, sem Hæstiréttur hafði þá dæmt hann í fyrir misneytingu gagnvart áttræðri, heilabilaðri konu, sem hann hafði haft háar fjárhæðir af. Rannsókn lögreglu á svikum mannsins nú er á lokastigi og verður málið sent til ákæruvaldsins um framhaldið.- jss
Mest lesið Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Innlent Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Innlent Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Innlent „Við búum í brjáluðum heimi“ Erlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Innlent Fleiri fréttir Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegt tímabil klárast á dögunum Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Stál í stál og sammála um fátt á fundi um ESB Sjá meira