Innanríkisráðherra skipar fagráð um kynferðisbrot 19. maí 2011 10:02 Guðrún Ögmundsdóttir verður formaður ráðsins.
Innanríkisráðherra hefur sett á stofn þriggja manna fagráð sem fjalla skal um ásakanir vegna ofbeldisbrota og kynferðisbrota einkanlega hjá trúfélögum samkvæmt tilkynningu frá innanríkisráðuneytinu. Fagráðið skal vera innanríkisráðherra til ráðgjafar í málum sem þessum og leiðbeina um leiðir til úrbóta. Þá skal það móta reglur fyrir starfsemina sem yrði grundvöllur að tillögum að breytingum á lögum um skráð trúfélög og eftir atvikum stofnanir og félagasamtök sem njóta opinbers stuðnings að einhverju eða öllu leyti og miði að því að koma kærumálum í markvissari farveg. Fagráðið skal einnig vera innanríkisráðherra til ráðgjafar um framkvæmd laga um skráð trúfélög og þá einkum hvað varðar aðstæður sem greini um í lögum þar sem fjallað er um niðurfellingu skráningar trúfélaga. Þar segir að séu skilyrði til skráningar ekki lengur fyrir hendi eða ef trúfélag vanrækir skyldur sínar samkvæmt lögum skuli ráðuneytið veita trúfélaginu skriflega viðvörun og veita frest til úrbóta. Sé ekki bætt úr getur ráðherra ákveðið að fella skráninguna úr gildi. Starfshópinn skipa Guðrún Ögmundsdóttir, tengiliður vistheimila sem er formaður, Bragi Guðbrandsson, forstöðumaður Barnaverndarstofu, og Björgvin Björgvinsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu. Með fagráðinu starfar María Rún Bjarnadóttir, sérfræðingur á sviði mannréttindamála í innanríkisráðuneytinu.
Mest lesið Trump fer mikinn á Truth Social og virðist ætla sér Kanada Erlent Hrókering hjá Helga og Miðflokknum vex Áss megin Innlent Rauð norðurljós vegna kórónugoss Innlent Lamdi konu stuttu eftir að hann var stunginn Innlent Ingibjörg býður sig fram í formanninn Innlent Vöruðu við slæmum skilyrðum á brautinni Erlent Fjórar hákarlaárásir á aðeins 48 klukkustundum Erlent Þrír fullir Íslendingar lausir úr haldi Innlent Fyrsta árinu af fjórum lokið Erlent Ráðherra hafi gefið veiðileyfi á sig Innlent Fleiri fréttir Á þriðja tug á bráðamóttöku vegna hálkuslysa Ingibjörg býður sig fram í formanninn Þrír fullir Íslendingar lausir úr haldi Hrókering hjá Helga og Miðflokknum vex Áss megin Sandra tekin við af Guðbrandi Flughált í höfuðborginni og víðar um land Lamdi konu stuttu eftir að hann var stunginn Sænski herinn með viðbúnað á Íslandi Loðnuvertíð hafin og floti farinn til loðnumælinga Deilt um verðhækkanir Veitna Veita hjúkrunarheimilum ráðgjöf vikulega vegna drykkju eldri borgara Ráðherra hafi gefið veiðileyfi á sig Rauð norðurljós vegna kórónugoss Hljóp á sig Ósanngjarnt að skattgreiðendur borgi framkvæmdaruslið Vegagerðin ræðst í úrbætur á slysstað banaslyss Össur um öryggismálin, vandi vinstrisins og falin fíkn eldri borgara Íslendingur handtekinn á EM Ráðuneytið vill að fleiri bjóði sig fram Ólafur sakar Ingu um að vera sjúka í að láta mynda sig við skóflustungur „Dapurlegt að gera ákvarðanirnar tortryggilegar“ Hundaeigendur hvattir til að vera á varðbergi Hafi brotist inn til föður barnsmóður sinnar og reynt að myrða hann Handtökur, húsleit og haldlögð vopn í lögregluaðgerðum á Akureyri Vegagerðin bæti hringveginn eftir að grjót banaði ferðamanni Bréf Trumps til Norðmanna og væringar innan VG Verkútboð í vegagerð auglýst eftir langt hlé „Þarf að klára að setja slaufu á pakkann“ „Blasir við að íslenskt launafólk var svikið“ Um tvöfalt fleiri óánægðir en ánægðir með frestun gangna Sjá meira