Hnakkurinn haggaðist ekki 19. maí 2011 17:00
Benedikt Brynleifsson úr Vinum Sjonna sat á hnakki þegar hann flutti lagið Coming Home í úrslitum Eurovision í Þýskalandi. „Þetta átti að vera tengingin við hestamennskuna sem var áhugamál Sjonna og tenging í myndbandið sem var gert í hlöðu," segir Benedikt. Þórunn Erna Clausen, ekkja Sjonna, fékk hnakkinn lánaðan heima á Íslandi og hópurinn flaug svo með hann út. „Það kom á óvart hvað þetta var þægilegt," segir Benedikt spurður hvernig það hafi verið að sitja á hnakkinum. „Ég hélt að þetta yrði óþægilegt og að hann væri valtur en hann haggaðist ekki." Benedikt var líkt við Ryan Giggs úr Manchester United meðan á keppninni stóð og var það ekki í fyrsta sinn sem honum er líkt við fótboltakappann. Sjálfur fylgist hann ekkert með fótbolta. „Tengdafjölskyldan mín er United-fólk þannig að ég skal bara halda með þeim," segir Benedikt og hlær. Þetta var í annað sinn sem hann tekur þátt í úrslitum Eurovision því hann fór til Serbíu með Eurobandinu árið 2008. Þá fór hann ekki upp á svið líkt og á laugardaginn. „Núna var ég í fyrsta skipti að syngja á sviði. Auðvitað var það mikil áskorun fyrir mig, með þessa frábæru söngvara í kringum mig að standa sig." Hér fyrir ofan má sjá Benedikt á sviðinu með Vinum Sjonna í Düsseldorf síðastliðin laugardag. Upptakan er frá belgíska ríkissjónvarpinu.
Mest lesið Vaktin: Komast Væb-bræður áfram? Lífið Komast ekki áfram nema þeir séu á skjánum Lífið Formleg spá og ítarleg greining á keppendum kvöldsins Lífið Tom Cruise stökk úr þyrlu með myndavél Íslendinga Bíó og sjónvarp „Mökkurinn var þéttur og við fórum í gegnum hann“ Lífið Egill í SuitUp keypti glæsiíbúð undir fasteignamati Lífið Íslendingarnir gleymdu mikilvægu hráefni á lokadeginum Lífið María Birta og Elli orðin tveggja barna foreldrar Lífið Þessi lönd komust áfram í úrslit Lífið Sögulegt parhús í Hlíðunum Lífið Fleiri fréttir Þessi lönd komust áfram í úrslit „Ég fæ það bara strax og ég set hann inn“ Vaktin: Komast Væb-bræður áfram? Einar og Milla eiga von á dreng Egill í SuitUp keypti glæsiíbúð undir fasteignamati „Ég fæddist fyrir þessa stund“ Sögulegt parhús í Hlíðunum Íslendingarnir gleymdu mikilvægu hráefni á lokadeginum Komast ekki áfram nema þeir séu á skjánum María Birta og Elli orðin tveggja barna foreldrar Innlit í best skipulögðu íbúðina á Selfossi Fögur fljóð og töfrandi stund í Haukadal Formleg spá og ítarleg greining á keppendum kvöldsins „Mökkurinn var þéttur og við fórum í gegnum hann“ Pussy Riot og Páll Óskar troða upp til stuðnings flóttafólki Skrýtið að sjá mannfjöldann syngja með á íslensku Halla á hátíðarsýningu Attenborough Norðurljósin séu svalasta undur veraldar Arnar og Sara gáfu syninum nafn Atriðin sem Ísland vill ekki fá áfram Í kossaflensi á Beyoncé Ísrael sendir kvörtun til EBU Aðal gellur landsins saman í epískri hestaferð Stjörnulífið: Seiðandi ofurskvísur og mæðradagurinn Elskar fallega hælaskó og Prettyboitjokkó Fréttamaður í næstlélegasta flokknum en Væb stórstjörnur Næsta lag fjalli um hið íslenska gufubað „Ég varð stjörf af hræðslu“ Krakkatían: Reikistjörnur, regnbogar og kengúrur „Og ég varð snargeðveikur“ Sjá meira