Prófaður sem Jeff Buckley 22. júní 2011 16:00 Alexander Briem var beðinn um að senda inn myndbandsprufu af sér í hlutverki Jeff Buckley. Til stendur að gera kvikmynd um tónlistarmanninn en meðal þeirra sem hafa verið orðaðir við hlutverkið eru Robert Pattinson og James Franco. Fréttablaðið/Anton Brink
Alexander Briem, stjarnan úr Gauragangi, var beðinn um að senda inn myndbandsprufu fyrir hlutverk Jeff Buckley samkvæmt heimildum Fréttablaðsins en til stendur að gera kvikmynd um bandaríska tónlistarmanninn. Vera Sölvadóttir leikstýrði prufunni og lítill hópur fólks kom að gerð hennar en mikil leynd hefur hvílt yfir verkefninu. Hvorki Alexander né móðir hans, útvarpskonan Sigríður Pétursdóttir, vildu tjá sig um málið við Fréttablaðið. Alexander fékk frábæra dóma fyrir frammistöðu sína sem Ormur Óðinsson í kvikmyndinni Gauragangur. Alexander hefur aldrei farið leynt með þann draum sinn um að verða leikari á stóra sviðinu og er þar að auki mikill Buckley-aðdáandi. Til að mynda komst Fréttablaðið yfir myndband á vefsíðunni Vimeo.com þar sem Alexander syngur lag eftir Buckley á útskriftartónleikum. Eftir því sem Fréttablaðið kemst næst fékk Alexander sendar tvær senur úr myndinni og fyrirmæli um að leika lag á gítar og syngja í annarri senu. Það mátti þó ekki vera Halleluja, þekktasti slagari tónlistarmannsins. Tökurnar fóru fram í síðustu viku og voru sendar út til Bandaríkjanna í þessari viku. Ekki liggur fyrir hvenær svör berast. Jeff Buckley var mörgum harmdauði þegar hann lést langt fyrir aldur fram þann 29.maí 1997. Hann drukknaði í Wolf River-höfninni við Mississippi-fljótið en hann var þá að vinna að nýrri plötu. Buckley tókst aðeins að gefa út eina plötu, Grace, sem hlaut einróma lof gagnrýnenda og er enn í hávegum höfð. Kvikmynd um tónlistarmanninn hefur verið lengi í bígerð og Twilight-leikarinn Robert Pattinson var nýlega orðaður við hlutverkið. Þá hefur James Franco, sem tilnefndur var til Óskarsverðlauna í ár fyrir leik sinn í 127 hours, einnig verið nefndur sem hugsanlegur möguleiki.-freyrgigja@frettabladid.is
Mest lesið Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Lífið Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Lífið Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Lífið David kemur áhugalausri Victoriu til varnar Lífið Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Lífið Ljóðrænt hótel á Akureyri Lífið „Drullið ykkur í burtu“ Lífið Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Lífið Selja herrasetur í Þingholtunum Lífið Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Lífið Fleiri fréttir Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sjá meira