Steindi Jr. gefur út sumarplötu 26. maí 2011 14:00 „
Við ætlum að gefa út plötu og okkur langar að gefa hana út sem fyrst, helst eftir mánuð,“ segir grínistinn Steindi Jr. Hann og félagi hans Ágúst Bent hafa ákveðið að gefa út öll lögin sem hafa hljómað í tveimur þáttaröðum Steindans okkar á Stöð 2. Sjö lög voru í fyrstu þáttaröðinni í fyrra og átta til viðbótar hljóma í þeirri nýjustu sem hefur verið sýnd að undanförnu. Flest lögin hafa notið mikilla vinsælda hjá aðdáendum þáttarins en þau voru unnin í samstarfi við upptökuteymin Stop Wait Go og Redd Lights, auk tónlistarmannsins Berndsen. „Ég fæ mjög oft símtöl og tölvupósta frá alls konar fólki sem er að biðja um að senda sér lög. Ég hef alltaf gert það en það er kannski þægilegt að hafa þetta allt á einum stað,“ segir Steindi, sem útilokar ekki að fleiri lög verði tekin upp fyrir plötuna. Lög sem hafa verið minna áberandi í þáttunum og lítið heyrst í útvarpi fá sinn sess á plötunni, þar á meðal Í góðu skapi, Newcastle Utd. og Djöfull er mér heitt. Steindi er þessa dagana að ljúka við áttunda og síðasta þáttinn í Steindanum okkar. Eftir það fer hópurinn í nokkurra vikna sumarfrí. Framhaldið er síðan óráðið. „Það á eftir að ákveða hvort það verður önnur sería en við sáum þetta alltaf fyrir okkur sem þrjár seríur,“ segir hann. -fb
Mest lesið „Var að syrgja pabba þegar mamma dó“ Lífið Stjörnur fjármálabransans komu saman Lífið Íbúar furða sig á horfnu listaverki Menning Glæsilegar í Gamla Bíói Lífið Gjörsamlega búinn á því eftir að hafa prófað nýjasta æðið Lífið Fréttatía vikunnar: Jakkaföt, hlaupaföt og grænn loðbúningur Lífið Hátindur Netflix réttur staður fyrir Baltasar Lífið Eiginkonan hélt að Vígþór væri að grínast í fyrstu spurningu Lífið Flóni og Alaska ekki lengur „bara vinir“ Tónlist Borgarleikhúsið sviptir hulunni af Trölla Menning Fleiri fréttir „Var að syrgja pabba þegar mamma dó“ Fréttatía vikunnar: Jakkaföt, hlaupaföt og grænn loðbúningur Glæsilegar í Gamla Bíói Stjörnur fjármálabransans komu saman Eiginkonan hélt að Vígþór væri að grínast í fyrstu spurningu Hátindur Netflix réttur staður fyrir Baltasar Gjörsamlega búinn á því eftir að hafa prófað nýjasta æðið Gunnar Smári rís upp úr „rotnandi holdi“ í sumar Oddvitaáskorun: „Við höfum þurft að skera allt niður vegna hamfaranna“ Síðasti lærlingur Rakmaninoff látinn Sumir sáttir en flestir keppast við að tæta Michael í sig „Ég er búinn að eyðileggja keppnina“ Drakk óvart áfengi í fyrsta sinn og það undir stýri Mætti hættulegasta dýri Afríku og hélt að það væri „einhver belja“ Ísland: „Lauslátasta nunnan í klaustrinu“ Sigga Ósk er Ungfrú Ísland Hvað veistu um... Tenerife? Bein útsending: Nítján stúlkur vilja verða Ungfrú Ísland Það heitasta í veislutertum Orkugeirinn kom saman á ársfundi Orkuveitunnar Áttu að föndra dýr aftan á bolinn Keppast um titilinn Ungfrú Ísland í kvöld Jenner og Elordi verið að hittast síðustu mánuði Oddvitaáskorunin: Þegar byrjuð að skrifa ævisöguna Einhleypir og eftirsóttir sumarstrákar Rifjaði upp martröðina á Arnarhóli Fagnaði sigri með bumbukossi „Ég er ekki stoltur af því hvernig ég lét“ Laufey með lag í nýja Pradadjöflinum Særir burt drauga og dáleiðir sársauka í burtu Sjá meira