Tímaritið Q segir Ólaf Ragnar fyrrum rótara Zeppelin 8. janúar 2011 13:00 Robert Plant var kjörinn maður síðasta árs af Q.
Eitt stærsta tónlistartímarit Bretlands, Q, heldur því fram í nýjasta tölublaði sínu að Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, hafi verið rótari á tónleikum með rokkurunum í Led Zeppelin. Þar er vafalítið verið að vísa til sögufrægra tónleika sveitarinnar í Laugardalshöll 1970. Þessi dularfulli staðreyndarmoli er settur fram í tilefni þess að Robert Plant, fyrrverandi söngvari Led Zepplin, var kjörinn maður síðasta árs af tímaritinu. Ólafur Ragnar hefur hingað til ekki verið þekktur sem rokkáhugamaður, hvað þá rótari, og koma þessi skrif því verulega á óvart. Ef farið er rúm fjörutíu ár aftur í tímann lauk Ólafur, sem þá var 27 ára, doktorsnámi sínu í stjórnmálafræði við Manchester-háskóla. Sama ár flutti hann til Íslands og hóf kennslu við Háskóla Íslands. Til að fá það staðfest hvort forsetinn hafi þetta ár í raun og veru tekið sér frí frá fræðistörfum sínum til að gerast aðstoðarmaður goðsagnanna í Zeppelin hafði Fréttablaðið samband við forsetaembættið og fékk þá þetta svar: „Forsetann rekur ekki minni til þess. En hins vegar getur ýmislegt hafa gerst fyrir fjörutíu árum sem ekki er lengur fast í minni." Líklegt er því að „staðreynd" Q í þessu nýjasta tölublaði sé úr lausu lofti gripin, í það minnsta þangað til annað kemur í ljós. - fb
Mest lesið Skipta um stríðsguð vegna alvarlegra meiðsla Bíó og sjónvarp Fyrsta verk Ella Egils selt á fimm þúsund krónur en verk dóttur hans á tífalt meira Lífið Olivia Rodrigo á Íslandi Lífið Franskt draumabrúðkaup eins og beint úr ævintýri Lífið Íslendingar sópa að sér verðlaunum í dansi Lífið Grafalvarlegt nýtt efni: „Jafn tilgangslausar og að selja flugelda inni í helli“ Tónlist Von á tíu nýjum lögum tíu árum eftir andlátið Tónlist Desiigner handtekinn eftir að hafa elt konu vopnaður hamri Lífið Óskarsverðlaunahafinn Brenda Fricker látin Bíó og sjónvarp Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Lífið Fleiri fréttir Olivia Rodrigo á Íslandi Íslendingar sópa að sér verðlaunum í dansi Desiigner handtekinn eftir að hafa elt konu vopnaður hamri Fyrsta verk Ella Egils selt á fimm þúsund krónur en verk dóttur hans á tífalt meira Franskt draumabrúðkaup eins og beint úr ævintýri Stytta af Charlie Kirk á Times Square Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Bríet sviptir hulunni af kærastanum Fyrsta lesbían til að prýða Playboy „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Haaland hunsaði Holland Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Sjá meira