Hjónasvipur með íslensku merkjunum í Kaupmannahöfn 10. ágúst 2011 10:15 Þau Brynhildur Þórðardóttir og Rúnar Leifsson seldu merkið sitt, Lúka Art &Design, í fjórar Skandinavískar vefverslanir. Fréttablaðið/valli „
Við fundum fyrir mjög miklum áhuga og erum því sátt við helgina," segir Brynhildur Þórðardóttir fatahönnuður um helgina á Tískuvikunni í Kaupmannahöfn. Brynhildur hannar fyrir merkið Lúka Art & Design og var að fara á Tískuvikuna í Kaupmannahöfn í fyrsta sinn en þangað fóru einnig Kron by KronKron, Diza by Alprjón, Farmers Market og Andersen & Lauth. „Sýningin var vel heppnuð og við ánægð með hversu margir komu við í básnum okkar. Ég er núna bara að fara í gegnum alla hrúguna af nafnspjöldum sem við fengum til að fylgja áhuganum eftir," segir Brynhildur og staðfestir að fjórar vefverslanir í Skandínavíu ætli að selja Lúka Art & Design hjá sér í vetur og svo fengu þau boð á Prêt à Porter-sýninguna í París. Brynhildur rekur fyrirtækið ásamt eiginmanni sínum, Rúnari Leifssyni, sem fór með henni út. Svo skemmtilega vildi til að á Tískuvikunni í Kaupmannahöfn voru fjögur af fimm fatamerkjum frá Íslandi rekin af hjónum. Það var því ákveðinn hjónaandi sem sveif yfir básum íslensku tískumerkjanna. Jóel Pálsson og Bergþóra Guðnadóttir eru fólkið á bak við fatnaðinn frá Farmers Market. Hugrún Árnadóttir og Magni Þorsteinsson eru saman með Kron by KronKron. Svo eru það Gunnar Hilmarsson og Kolbrún eiginkona hans sem reka og hanna saman merkið Andersen& Lauth. - áp
Mest lesið Eric Dane er látinn Lífið Hlægileg sjálfsfróun og hryðjuverk á Wuthering Heights Gagnrýni Hitti Gísla á Uppsölum á skyggnilýsingafundi Lífið Frá einni ofurbombu til annarrar Lífið Íslensk Barbí og Ken: „Litaði bara hárið og fór í sprey-tan“ Lífið Þeim fjölgar sem skilja Lífið Sagði já og baðst í leiðinni afsökunar Lífið Vigdís og Gerald Häsler selja húsið Lífið „Hversu fljót ertu að hlaupa?“ Lífið Í sárum yfir brandara um hrossatyppi Lífið Fleiri fréttir Halla Vilhjálms flutt í Fossvoginn „Hversu fljót ertu að hlaupa?“ Hitti Gísla á Uppsölum á skyggnilýsingafundi Frá einni ofurbombu til annarrar Eric Dane er látinn Þeim fjölgar sem skilja Íslensk Barbí og Ken: „Litaði bara hárið og fór í sprey-tan“ Vigdís og Gerald Häsler selja húsið Nýtt verk frá Martin en samt kvarta aðdáendur Falsmyndir af sólmyrkva vella fram: „Gervigreindin er plága“ Ekkja Hefners varar við birtingu nektarmynda úr dagbókum hans Verður alltaf meyr þegar hann hugsar um lífsbjörgina „Við löbbum ekki bara og hrösum um Esjuna“ Í sárum yfir brandara um hrossatyppi Sungið, saumað og sprellað á öskudaginn Sagði já og baðst í leiðinni afsökunar „Ég skal rétta þjófinum 60.000 kall og óska honum góðs dags“ Tannlæknir sem tannkrem á öskudaginn Keyptu 250 fermetra hús í Andalúsíu á fjörutíu milljónir Handtekinn fyrir að sýna typpið LaBeouf buffaði tvo og sambandið búið spil Pedro Pascal og Rafa saman á Valentínusardag „Ég er alltaf þreyttur á sjálfum mér“ Hætti að drekka og flutti til Balí Vatnaskil hjá Draugum fortíðar: „Dálítið sérstakt að upplifa það að rekast á vegg“ Maguire hlóð rafhlöðurnar á Fróni Albert gaf Villa málverk af mótorhjólaferðinni Tók í spaðann á Gene Simmons: „You would be popular in jail“ Epstein sem Drakúla endurfæddur Birgir Hákon orðinn pabbi Sjá meira