Eitthvað er greinilega að í herbúðum Kings of Leon 10. ágúst 2011 10:15 Calebs Followill er sögð ástæðan fyrir því að Kings of Leon hætti við 29 tónleika á dögunum. Vandamál hljómsveitarinnar eru talin mun meiri.
Óvissa ríkir um framtíð Kings of Leon, eina stærstu hljómsveit heims. Ofþreyta er sögð vera ástæðan fyrir því að hljómsveitin hætti við restina af tónleikaferðalagi sínu um Bandaríkin, en vandamálin eru sögð miklu djúpstæðari en það. Eftir að hafa kvartað sáran undan miklum hita, tilkynnti Caleb Followill, söngvari Kings of Leon, gestum á tónleikum hljómsveitarinnar í Dallas á dögunum að hann ætlaði að fara baksviðs, æla, drekka bjór og snúa svo aftur og flytja þrjú lög. Hann sneri ekki aftur. Daginn eftir var tilkynnt að Kings of Leon hefði hætt við síðustu 29 tónleikana í ferðalagi hljómsveitarinnar um Bandaríkin. Ástæðan var sögð vera ofþreyta, en innan úr tónlistarbransanum vestanhafs heyrist að það sé einfaldlega hentugur stimpill á miklu djúpstæðari vandamál. Skömmu eftir að tilkynningin um málið barst sagði Jared Followill, bassaleikari Kings of Leon, á Twitter-síðu sinni að hljómsveitin glímdi við innvortis veikindi og vandamál sem þarf að afgreiða. „Ég get ekki logið. Vandamál hljómsveitarinnar eru stærri en svo að við drekkum ekki nógu mikið Gatorade,“ sagði hann. Þannig gaf hann sögusögnum um óljósa framtíð hljómsveitarinnar byr undir báða vængi. Vandamál Kings of Leon eru ekki ókeypis. Talið er að hljómsveitin og aðilar sem tengjast henni tapi allt að 15 milljónum dala á ofþreytu söngvarans. Þá gæti reynst erfitt að tryggja framtíðartónleikaferðalög hljómsveitarinnar, enda ekki allir sem þora að bendla sig slík ólíkindatól.
Mest lesið Myndaveisla frá Gleðigöngunni: Borgarstjóri, biskup og risastór flæmingi Lífið Örlaganótt á Kiki varð að ást um ókomna tíð Lífið Euphoria-stjörnur á Íslandi Lífið Brekkusöngur á jafnsléttu hápunkturinn Lífið Fréttatía vikunnar: Úkraína, hoppukastali og George R. R. Martin Lífið Trump deilir myndum frá Íslandsferðinni Lífið Þetta táknar flæmingi Páls Óskars: „Kommentakerfið logar af fólki sem talar eins og 1986“ Lífið Glæný stikla úr Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp „Hef engar áhyggjur af því hvað þeim finnst“ Tíska og hönnun Héldu annað brúðkaup í leyni á sveitasetri í Surrey Lífið Fleiri fréttir Myndaveisla frá Gleðigöngunni: Borgarstjóri, biskup og risastór flæmingi Brekkusöngur á jafnsléttu hápunkturinn Euphoria-stjörnur á Íslandi Örlaganótt á Kiki varð að ást um ókomna tíð Fréttatía vikunnar: Úkraína, hoppukastali og George R. R. Martin Þetta táknar flæmingi Páls Óskars: „Kommentakerfið logar af fólki sem talar eins og 1986“ „Við nýtum tækifærið og ræðum lífið og tilveruna“ Héldu annað brúðkaup í leyni á sveitasetri í Surrey Trump deilir myndum frá Íslandsferðinni Sigurjón Sighvatsson hlýtur heiðursverðlaun Dóttir Ingu Lindar selur miðbæjarperlu „Ég mun aldrei treysta því að kerfið passi upp á son minn“ Hringar bendi til þess að Hadid og Cooper hafi gift sig Inga Sæland orðin eldri borgari: „Mér finnst ég alltaf vera bara tvítug“ Mikkel Hansen og Guðlaugur Victor í stuði hjá 66°Norður „Ekki hægt að horfa á neitt annað en brjóstin á þér“ „Hún er í hljóðverinu núna“ Hvað veistu um… One Direction? Dorrit um tíðindin: „💦💦💦💦💦💦“ Sankað að sér milljónum fylgjenda á tíu ára ferli Hvað er í gangi á Svalbarða? Hefur „ekki hugmynd um hvað er í gangi“ en kemur Grande samt til varnar Good Morning America í beinni frá Bláa lóninu á almyrkva Perez Hilton fluttur á spítala eftir sjálfsskaða í beinu streymi Sonur Mari og Njarðar fæddur Líkamlega lemstruð og fötin í rúst en vel þess virði Leiðir skilja hjá Ólafi Ragnari og Dorrit „Ég vil vera bestur í öllu“ Dregur sig í hlé: „Þessi aumingja kona er að deyja beint fyrir framan okkur“ Opnar sig um þunglyndi og depurð Sjá meira