Dúkkulísur á Innipúkanum 19. júlí 2011 09:00 Dúkkulísur ætla að spila á Innipúkanum um verslunarmannahelgina. Þær fagna þrjátíu ára afmæli sínu á næsta ári. „
Við verðum þrítugar á næsta ári svo þetta er eins konar upphitun fyrir stórafmælið,“ segir Erla Sigríður Ragnarsdóttir, söngkona Dúkkulísanna. Hljómsveitin góðkunna ætlar að koma fram á Innipúkanum um verslunarmannahelgina. „Það er nú oft mikið mál þegar við hittumst. Tvær okkar búa á Egilsstöðum og ein í Grindavík, svo það þarf að hóa þessu saman með miklum látum,“ segir Erla Sigríður. Dúkkulísur voru stofnaðar á Egilsstöðum haustið 1983 og tóku þær þátt í hljómsveitarkeppni Atlavíkurhátíðarinnar árið 1984, þar sem þær lentu í öðru sæti. Sama ár unnu þær Músíktilraunir og kom fyrsta breiðskífa þeirra út árið 1985. Dúkkulísur gáfu svo út aðra breiðskífu, áður en þær tóku sér hvíld árið 1987. Þær hafa þó komið saman við hin ýmsu tækifæri síðan, eða um einu sinni til tvisvar á ári. Eins og áður kom fram, fagna Dúkkulísur þrjátíu ára afmæli sínu á næsta ári. Erla segir hljómsveitina vera með margar hugmyndir á lofti hvað varðar afmælisfögnuðinn. „Mest langar okkur að búa til bíómynd, það væri virkilega gaman. Annars langar okkur að halda útihátíð í Viðey, kjólauppboð og vinnubúðir fyrir kvennahljómsveitir, þar sem allar íslenskar kvennahljómsveitir fyrr og síðar myndu koma saman,“ segir Erla, og bætir við að allt verði þetta ákveðið að Innipúkanum loknum. Innt eftir því hvort Dúkkulísur lumi á nýju efni fyrir komandi tónleika, svarar Erla því neitandi. „Ekki núna í ár, en á næsta ári. Ég lofa einu nýju lagi í tilefni afmælisins.“ - ka
Mest lesið Flúði Pútín og þurfti svo að glíma við MAST Lífið Svaf til fóta eftir fyrstu sambandsslitin Lífið John Grant tók Eldborg með áhlaupi — en hjartað vann stríðið Gagnrýni Tónlistin bjargráð eftir erfiða kulnun Tónlist Myndaveisla: Aldrei of gamall til að skella sér á bak Menning Veggjakrotað með kandýfloss á sýningunni „Hæhóogjibbíjei” Menning Djömmuðu sem dauðasyndirnar sjö Lífið „Ég er skíthræddur“ Tónlist Hafþór Júlíus reynir að hafa uppi á manni Lífið „Það reikna allir með að ég sé að nota þetta sem einhvern stökkpall“ Lífið Fleiri fréttir Flúði Pútín og þurfti svo að glíma við MAST Sjötugar á TikTok og elska fíflaganginn Svaf til fóta eftir fyrstu sambandsslitin „Það reikna allir með að ég sé að nota þetta sem einhvern stökkpall“ Djömmuðu sem dauðasyndirnar sjö Hafþór Júlíus reynir að hafa uppi á manni „Okkur var nánast sópað út af dansgólfinu“ Tuttugu gellur á einu kvöldi Dorrit á trampólíni 24 Jump Street á leiðinni Dagskráin í Reykjavík á 17. júní verður svona Inga Reynis selur hæð í Hafnarfirði Jakob Frímann stal senunni í hátískuskyrtu Stjörnulífið: Sjóðheit skvísuferð til Ibiza Oliver Tree látinn 32 ára að aldri Gáfu yfir 50 vinninga í beinni útsendingu Krakkatía vikunnar: HM, risaeðlur og naglaklippur Vildi hjálpa öðrum þótt hún vissi að tíminn væri naumur „Það er ástæða fyrir bólgunni“ Óboðni sturtugesturinn sextán sentímetra kónguló Ekkert líf að verða hrædd á hverju vori Fréttatía vikunnar: NASA, Messi og Mette-Marit Stórslasaðist átján ára eftir ölvaðan ökumann: „Braut öll bein á vinstri hliðinni minni“ Myndaveisla: Veðrið leikur við íbúa höfuðborgarsvæðisins Stærstu rauðu flöggin á stefnumótaforritum Gestir geti fengið innsýn í skapandi samfélag Hafnar.hauss Backstreet Boys frumsýna lag nýrrar Hvolpasveitarmyndar Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Hefur þegar fengið starfstilboð Sjá meira