Tónlist við skuggamyndir 7. febrúar 2011 00:01
Helmingur hljómsveitarinnar Amiinu er á leiðinni til Ástralíu þar sem spiluð verður tónlist við skuggamyndir þýskrar listakonu. Helmingur hljómsveitarinnar Amiinu flýgur til Ástralíu í lok febrúar til að spila tónlist við skuggamyndir þýskrar listakonu sem lést árið 1981. „Þetta er hliðarverkefni sem við höfum verið með í gangi í tæplega tvö ár. Ég var fengin til að semja tónlist við hreyfimyndir eftir konu sem heitir Lotte Reiniger af kvikmyndafestivalinu í Jersey. Við höfum verið að túra með þetta inn á milli," segir María Huld Markan Sigfúsdóttir í Amiinu. Reiniger gerði á sínum tíma sextíu svart-hvítar hreyfimyndir, meðal annars nokkrar byggðar á Grimms-ævintýrunum, og nutu þær mikilla vinsælda þegar kvikmyndalistin var að stíga sín fyrstu skref. Tónleikarnir verða fimm til sex talsins og verða haldnir á vegum alþjóðlegrar listahátíðar sem Perth, höfuðborg Vestur-Ástralíu, stendur fyrir. Einir tónleikar eru bara ætlaðir börnum og á öðrum tónleikum mun Amiinu-helmingurinn hita upp fyrir sænsku hljómsveitina Wildbirds & Peacedrums, sem spilaði á Airwaves-hátíðinni í haust. „Þetta eru mjög flottar skuggamyndir og það merkilega er að sú elsta er alveg frá 1922," segir María Huld. Hún hlakkar til að fara til Ástralíu. „Þetta verður mjög gaman fyrir utan flugið. Það er gaman að hafa þetta verkefni til hliðar því það er alltaf einhver ólétt í bandinu." Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins er það sellóleikarinn Sólrún Sumarliðadóttir og á hún von á sér í maí. Helmingur Amiinu mun spila tónlist við skuggamyndir Reiniger á fleiri hátíðum á þessu ári. Næst spilar hljómsveitin í heild sinni á tvennum tónleikum í Belgíu síðar í þessum mánuði en í mars spilar hún án Sólrúnar á tónleikum í Boston. Með haustinu ætlar Amiina svo að kynna nýjustu plötu sína, Puzzle, enn frekar erlendis. Gripurinn er kominn út í Bretlandi og víðar í Evrópu, auk þess sem dreifing er fyrirhuguð í Japan, Ástralíu og Bandaríkjunum. Platan er einnig fáanleg á iTunes og verður sömuleiðis til á vínyl á vegum Morr-útgáfunnar. freyr@frettabladid.is Hér fyrir ofan má sjá myndband þar sem Amiina flytur tónlist sína við Öskubusku eftir Lotte Reiniger á kvikmyndahátíðinni í Jersey fyrir rúmu ári síðan.
Mest lesið Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga Lífið „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Lífið Stór brjóst eru stór Lífið Bestu kvikmyndir 21. aldarinnar Bíó og sjónvarp Hvað veistu um… Stellu í orlofi? Lífið „Nú erum við komin í alvöru Drakúlaleik“ Lífið Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Lífið Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Lífið Grái skilnaðurinn: Sífellt fleiri 50+ að skilja Áskorun Oddvitaáskorunin: „Sérvitur sveitavargur“ Lífið Fleiri fréttir „Nú erum við komin í alvöru Drakúlaleik“ Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Oddvitaáskorunin: „Sérvitur sveitavargur“ Stór brjóst eru stór Hvað veistu um… Stellu í orlofi? Fengu Dern í stað Bonham Carter Jóhann Alfreð með púlsmæli og fékk að finna fyrir því Úrslitakvöld Eurovision verður í beinni á Rúv 2 Rándýr trefill varð ælu Bjargar að bráð á Prikinu Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Dorrit djammaði með Adwoa Aboah á Sikiley Ástin blómstrar hjá Svala og Birnu Oddvitaáskorunin: Úr jail-inu í Yale Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Kolféllu fyrir Brooklyn í hjónasportinu Fögnuðu fjörutíu árum Krýsuvíkursamtakanna Oddvitaáskorunin: Besti landsbyggðarandinn þrátt fyrir fjölmenni Sigur Rós spilar í 100 ára afmæli Attenboroughs Andar sig reyklaus í gegnum kosningabaráttuna Ókunnug kona í salnum lifði sig gríðarlega inn í þáttinn Adam fór á skeljarnar í Kerlingarfjöllum Mínusmeðlimir fóru yfir rugltímann: „Ekki drukkið í fimmtán ár“ Albert keypti þakíbúð á hálfan milljarð Höguðu sér vel á árshátíð Haga Útför Björgvins Halldórssonar Athafnakona selur draumaíbúð í Hlíðunum Oddvitaáskorun: Býr á Hellu en eiginmaðurinn í Belgíu Áfengið yndislegt ef þú kannt að fara með það Gummi Tóta og Guðbjörg keyptu á 145 milljónir Sjá meira