Með vatnspoka á bakinu hjá Björk 5. júlí 2011 04:45 Jóna G Kolbrúnardóttir, hér ásamt Guðrúnu Matthildi Sigurbergsdóttur í Graduale Nobili, segir það magnaða upplifun að standa upp á sviði með Björk fyrir framan æsta áhorfendur í Manchester. „
Það er búið að ganga mjög vel og ótrúleg tilfinning að taka þátt í þessu,“ segir Jóna G. Kolbrúnardóttir um tónleika Bjarkar Guðmundsdóttur í Manchester en Jóna er hluti af kórnum Graduale Nobili sem syngur bakraddir hjá Björk. Núna er tveimur tónleikum lokið af sex en kórinn verður í Manchester í tæpan mánuð ásamt stórstjörnunni og fylgdarliði hennar. „Við höfum það mjög gott. Gistum í flottum hótelíbúðum og höfum allt til alls. Við höfum líka náð að skoða aðeins bæinn, sem er mjög fallegur, og fengið flott sumarveður,“ segir Jóna en þær hafa líka verið í ströngu æfingaprógrammi. Uppselt er á alla tónleikana og hafa þeir fengið góða dóma í miðlum á borð við The Guardian og The Independent „Tónleikarnir eru haldnir í hálfgerðri skemmu sem tekur um 1.800 manns. Áhorfendur standa í kringum sviðið og fylgjast með en við stöndum annaðhvort á sviðinu eða röðum okkur upp í kringum það. Björk er svo á iði úti um allt. Þetta er mjög sjónrænt og flott,“ segir Jóna og viðurkennir að það sé mögnuð upplifun að standa á sviði með Björk fyrir framan æsta áhorfendur. „Sumir hverjir eru alveg rosalega miklir aðdáendur Bjarkar og nánast með hana í guðatölu. Það er gaman að fylgjast með því.“ Kórinn fékk sérsaumaða kjóla fyrir tónleikana en í þeim leynast ísaumaðir vatnspokar með röri sem kemur út um hettuna. „Það er fyndið en nauðsynlegt að geta fengið sér vatnssopa þegar manni hentar því það verður mjög heitt á sviðinu,“ segir Jóna en ævintýri Graduale Nobili í Manchester lýkur þann 17. júlí. -áp
Mest lesið Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lífið Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Lífið David kemur áhugalausri Victoriu til varnar Lífið Aldraður og moldaður Tom Cruise til bjargar jörðinni Bíó og sjónvarp Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Lífið Litla systir Gretu Thunberg ætlar að verða súperstjarna Tónlist Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Lífið Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Lífið Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Lífið Lesbíur selja litríka íbúð Lífið Fleiri fréttir Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Sjá meira