Fagnaði þjóðhátíðardegi Bandaríkjanna í þyrluferð 5. júlí 2011 07:00 Kastaníubrúnn hnakkinn á Jon Bon Jovi tók á móti ljósmyndara Fréttablaðsins á Reykjavíkurflugvelli í gær. Mynd/Stefán
Fékk plötu með Gus Gus Maður á vegum Jon Bon Jovi kom við í plötubúð Smekkleysu á föstudag og keypti plötuna Arabian Horse með GusGus fyrir Bon Jovi. Bandaríski rokksöngvarinn Jon Bon Jovi er staddur á landinu, eins og fram kom í Fréttablaðinu í gær. Hann kom til landsins ásamt fjölskyldu sinni um helgina. Þjóðhátíðardagur Bandaríkjanna var í gær og Jon Bon Jovi og fjölskylda voru komin á kreik á Hótel Borg fyrir hádegi. Þau yfirgáfu Borgina upp úr ellefu á tveimur svörtum Lincoln Navigator-jeppum. Þeim var ekið rakleiðis á Reykjavíkurflugvöll þar sem AS365N Dauphin-þyrla Norðurflugs beið, en óvíst er hvert flogið var með hópinn. Fréttablaðið hafði samband við Norðurflug, en þar á bæ höfðu menn engar upplýsingar um ferðir Jon Bon Jovi. Koma Bon Jovi til landsins hefur vakið mikla athygli. Eins og Vísir.is og fleiri netmiðlar greindu frá í gær heilsaði hann upp á vegfarendur á Laugavegi um helgina. Vinkonurnar Klara Björns og Beta Gagga létu smella af sér mynd með söngvaranum, en þær rákust á hann á kaffihúsi í miðborginni. Þá kom maður úr fylgdarliði Bon Jovi við í plötubúð Smekkleysu á Laugavegi á föstudag. Sagðist hann vilja kynna Bon Jovi fyrir nýrri íslenskri tónlist og var ráðlagt að kaupa nýju plötuna með hljómsveitinni GusGus, Arabian Horse. Starfsfólk verslunarinnar fékk þau fyrirmæli að hafa hljótt um komu söngvarans til landsins, sem það gerði, en fyrsta fréttin um komu Bon Jovi til landsins birtist ekki fyrr en á mánudag í Fréttablaðinu. Eins og fram kom í blaðinu í gær dvelur Jon Bon Jovi í turnsvítunni á Hótel Borg á meðan hann jafnar sig eftir aðgerð á hné. Hljómsveit hans Bon Jovi kemur fram í Istanbúl í Tyrklandi á föstudaginn, en heimildir Fréttablaðsins herma að hann ætli að dvelja hér á landi þangað til hann heldur til Tyrklands. atlifannar@frettabladid.is
Mest lesið Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lífið Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Lífið David kemur áhugalausri Victoriu til varnar Lífið Aldraður og moldaður Tom Cruise til bjargar jörðinni Bíó og sjónvarp Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Lífið Litla systir Gretu Thunberg ætlar að verða súperstjarna Tónlist Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Lífið Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Lífið Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Lífið Lesbíur selja litríka íbúð Lífið Fleiri fréttir Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Sjá meira