Innlent

Öngþveiti í heimahúsi

Mennirnir voru dæmdir í Héraðsdómi Vestfjarða.
Mennirnir voru dæmdir í Héraðsdómi Vestfjarða.
Rúmlega tvítugir tvíburar hafa verið dæmdir í Héraðsdómi Vestfjarða fyrir líkamsárás. Annar þeirra var dæmdur í tólf mánaða fangelsi, þar af níu á skilorði. Hinn tvíburinn var dæmdur í átta mánaða skilorðsbundið fangelsi. Þeir voru dæmdir til að greiða fórnarlambinu tæpar 700 þúsund krónur í skaðabætur.

Árásin átti sér stað í samkvæmi í íbúð á Ísafirði í apríl 2010, þar sem meðal annarra var kærustupar, svo og tvíburarnir. Annar þeirra hafði verið með stúlkunni áður en hún fór í yfirstandandi samband. Hann viðhafði ljót orð um hana og setti þá bróðir kærasta hennar, sem einnig var staddur í partíinu, í hann fótinn. Þar með upphófust hópslagsmál milli tvíburanna og annarra, þar sem bróðir kærastans var illa leikinn.

Vitni sem lýstu látunum fyrir dómi sögðu að öngþveiti hefði ríkt í íbúðinni og að allt hefði „…verið í blóði og allt í volli“.

Bróðir kærastans hlaut alvarlega áverka þegar annar tvíburinn sló hann með brotinni bjórflösku, meðal annars marga stóra gapandi og tætta skurði í andliti.

-jss




Fleiri fréttir

Sjá meira


×