Innlent

Vitnuðu í siðareglur sem eru ekki til

Mörður Árnason
Mörður Árnason
Björn Óli Hauksson
Isavia hefur ekki sett sér siðareglur er varða birtingar auglýsinga í Leifsstöð, heldur er stuðst við siðareglur Sambands íslenskra auglýsingastofa. Þetta kemur fram í svari Björns Óla Haukssonar, forstjóra Isavia, við fyrirspurn Marðar Árnasonar þingmanns um auglýsingar dýraverndunarsamtakanna International Fund of Animal Welfare (IFAW).

Auglýsingar IFAW voru fjarlægðar úr Leifsstöð í síðustu viku og ástæðan sögð sú að þær væru taldar stangast á við siðareglur Isavia um auglýsingar. Isavia neitaði þó að sýna Fréttablaðinu siðareglurnar og gat hvorki sagt til um hvenær þær voru gerðar né hvaða tiltekna atriði í reglunum auglýsingarnar voru taldar stangast á við.

Mörður segir á vefsvæði sínu á Eyjunni að hann gefi lítið fyrir svör Björns og kallar þau „svör í skötulíki.“ Mörður hafði óskað eftir upplýsingum um umræddar siðareglur Isavia og spyr nú í framhaldinu hvaða siðareglur SÍA það séu nákvæmlega sem auglýsingarnar voru taldar stangast á við.

Þá segir í svari Björns að þetta sé í fyrsta sinn sem Isavia fjarlægi auglýsingar eftir að þær eru komnar upp. Fyrirtækið hafi þó neitað aðilum um auglýsingapláss áður, svo sem nektarstöðum.

- sv




Fleiri fréttir

Sjá meira


×