Hrunið erfitt fyrir orkuskólann Reyst 5. júlí 2011 12:15 Edda Lilja Sveinsdóttir, framkvæmdastjóri Reyst, segir hrunið hafa sett strik í reikninginn.
Orkuskólinn REYST stendur ágætlega fjárhagslega og getur vel rekið sig, þrátt fyrir að Háskóli Íslands hafi dregið sig úr verkefninu og Orkuveita Reykjavíkur hætt fjárstuðningi, að sögn framkvæmdastjóra skólans. Tíu til tuttugu nemendur hefja nám við skólann í haust. Hlutafélag um Orkuskólann Reyst var stofnað í febrúar 2008. Rektorar Háskóla Íslands og Háskólans í Reykjavík ásamt þáverandi stjórnarformanni Orkuveitu Reykjavíkur undirrituðu hlutahafasamkomulagið og hóf fyrsti árgangurinn nám við skólann haustið sama ár. Hlutafélagið var í jafnri eigu háskólanna tveggja og Orkuveitunnar. Markmið skólans er að stuðla að uppbyggingu náms og þekkingar á sviði endurnýjanlegrar orku, laða að hæfileikafólk og fjölga hæfum starfsmönnum Þetta er eins og hálfs árs mastersnám og eru skólagjöldin ein og hálf milljón. Aðsókn hefur hins vegar verið undir væntingum og þá hefur Orkuveitan þurft að hætta fjárveitingum til skólans í sparnaðarskyni. Í gær sögðum við svo frá því að Háskóli Íslands hefði dregið sig úr verkefninu og sagði Jón Atli Benediktsson, aðstoðarrektor vísinda og kennslu við Háskóla Íslands, að það hefði meðal annars verið gert af því að útskrifaðir nemendur hefðu ekki fengið störf í orkugeiranum hér á landi. Edda Lilja Sveinsdóttir, framkvæmdastjóri Reyst segir þetta ekki rétt hjá Jóni Atla. „Þó að eigandinn á þessu félagi, Orkuveitan, hafi ekki verið að ráða fólk, þá eru önnur fyrirtæki sem hafa ráðið fólk inn í geirann,“ segir Edda og nefnir Reykjavík Geothermal og Verkfræðistofuna Verkís og fleiri fyrirtæki sem dæmi. Edda segir það rétt að aðsókn haf verið undir væntingum en nemendur verða á bilinu tíu til tuttugu næsta haust en ekki þrjátíu eins og lagt var upp með í byrjun „Það er rétt. Við lögðum upp með stærra prógram en raunin varð en allir vita hvað gerðist 2008. Það setti strik í reikninginn hér og annars staðar.“ En það gerist ekki á einum degi að byggja upp alþjóðlegt meistaraprógram. Þetta er langhlaup en ekki spretthlaup og við höfum úthald til að klára málið," segir Edda og bætir við að skólagjöld nemenda ein og sér standi undir rekstri skólans.
Mest lesið Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Innlent Fannst blautur og kaldur eftir fimm tíma leit Innlent Skemmdarverkið setti svip sinn á útför Innlent Kornabarn reyndist á lífi í líkhúsi Erlent Ekki jákvætt þegar lögregla tekur af manni launin Innlent Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Innlent Reyndi að stela verkfærum iðnaðarmanna Innlent „Ef það gerist aftur mun þetta versna til muna!“ Erlent Sníkjudýrsaðferðin komin til Íslands: Hvers vegna var efnunum komið fyrir í sjókistu? Innlent Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Innlent Fleiri fréttir Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Skemmdarverkið setti svip sinn á útför Reyndi að stela verkfærum iðnaðarmanna Fannst blautur og kaldur eftir fimm tíma leit Ætla aftur að mála regnbogafánann Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Rússneska herskipið aftur innan lögsögunnar Jón Ingvar vildi níutíu milljónir en fær ekki krónu Kristrún um Trump: „Það er hlýtt á milli okkar“ Ríkisútvarpið braut ekki gegn siðareglum Trump, hóteldeilur og VestFest í kvöldfréttum Evrópusambandið sé verkfæri til að ná stöðugleika Stjórnandi drónans taldi sér ógnað og byssumaðurinn dæmdur Aukin framlög til varnarmála og öflugur stuðningur við Úkraínu á leiðtogafundi NATO Talið að tveir hafi staðið að meintum hatursglæp Gæsluvarðhald framlengt í Straumsvíkurmálinu Lögreglan leitar þessara manna Ísland skari fram úr ESB á flestum mælikvörðum Rannsaka málið sem hatursglæp Sneri sér við, greip í spaðann á Kristrúnu og gekk út Eldsvoði á Siglufirði nam þriðjungi bættra tjóna Ekki jákvætt þegar lögregla tekur af manni launin Fara áfram fram á varðhald yfir öllum níu Fær mál vegna sáðláts í andlit ekki tekið upp á ný Raforkueftirlitið fylgist með að lægri raforkukostnaður skili sér til neytenda Spenna á ráðstefnu NATO, raforkukostnaður og biskup um regnbogafánann „Líkist meira fána Grænhöfðaeyja heldur en þeim íslenska“ Lokuð akrein á Suðurlandsvegi og kvikmyndatökur á Krýsuvíkurleið Ummæli Trump um Grænland þurfi ekki að koma á óvart Sjá meira