Vill tromma þrátt fyrir axlarbrot 24. nóvember 2011 10:30 Óvíst er hvort Egill geti tekið þátt í tónleikum Grafíkur vegna axlarbrots. „
Þetta er tvísýnt. Ég ætla að hitta lækni og gera þetta í samráði við hann,“ segir trommuleikarinn Egill Rafnsson. Hann varð fyrir því óláni að axlarbrotna fyrir um tveimur og hálfum mánuði og því er þátttaka hans í útgáfutónleikum Grafíkur 1. desember í óvissu. „Ég get ekkert notað upphandlegginn. Ég er handlama í raun og veru. Ég get notað framhandlegginn, hann er kominn í lag þannig að ég get gutlað eitthvað með,“ segir Egill, sem var á leiðinni heim frá London þegar Fréttablaðið náði tali af honum. Atvikið átti sér stað á Esjumelum þar sem hann var á ferð sem leiðsögumaður fyrir fjórhjólahóp. Þegar hann keyrði fram af sandhóli datt hann af fjórhjólinu sínu og fékk það síðan yfir sig. Þegar slysið varð var Egill nýbúinn að ráða sig sem trommuleikara í hljóðveri í London og var búinn að útvega sér íbúð þar í borg fyrir fjölskylduna sína. Þar hafa þau dvalið á meðan Egill hefur verið að jafna sig en óvíst er hvort starfið í hljóðverinu stendur enn til boða. „Það verður að koma í ljós hvað þeir nenna að bíða eftir mér lengi. Þetta var fyrst hálfsársverkefni en ég vona bara það besta. Þetta stúdíó er ekkert voðalega merkilegt en hefði kannski getað verið byrjunin á einhverju.“ Ný heimildarmynd um Grafík verður frumsýnd á Ísafirði í kvöld og útgáfutónleikarnir verða í Austurbæ í tilefni af safnpakka með sveitinni sem spannar þrjátíu ára feril sveitarinnar. Faðir Egils, Rafn, sem er látinn, var einn af upphaflegum meðlimum Grafíkur.- fb
Mest lesið Fréttamaður í næstlélegasta flokknum en Væb stórstjörnur Lífið „Ég varð stjörf af hræðslu“ Lífið Næsta lag fjalli um hið íslenska gufubað Lífið „Og ég varð snargeðveikur“ Lífið „Ég þurfti að breyta hugsun, hegðun og tali“ Áskorun Vilja stimpla sig inn með stæl Lífið Krakkatían: Reikistjörnur, regnbogar og kengúrur Lífið Söngvakeppnin og stríðsrekstur Ísraels: „Ég er stolt af landinu mínu“ Lífið Sjáðu þrjátíu sekúndur af atriði VÆB í Eurovision Lífið Bók skilað eftir 56 ára útlán Lífið Fleiri fréttir Fréttamaður í næstlélegasta flokknum en Væb stórstjörnur Næsta lag fjalli um hið íslenska gufubað „Ég varð stjörf af hræðslu“ Krakkatían: Reikistjörnur, regnbogar og kengúrur „Og ég varð snargeðveikur“ Fjölmenni á sjötíu ára afmæli Kópavogs Bók skilað eftir 56 ára útlán Hugmyndir fyrir mæðradaginn Bakaríið í beinni útsendingu Fréttatía vikunnar: Páfakjör, poppstjarna og nýr kanslari „Þetta eru þýðingarmestu skilaboð Davids Attenborough til þessa“ Hönnunarunnendur skáluðu í Kópavogi Molly-Mae og Tommy Fury saman á ný Drengurinn Fengurinn hlaut styrk úr Minningarsjóði Svavars Péturs Leikstjórinn James Foley er látinn Frumsýning hjá Auðuni: Langaði til að gera fallegt náttúruklám Kristín Péturs orðin tveggja drengja móðir Katrín Tanja og Brooks tilkynna kynið Glæsileg íbúð handboltakempu í Sigvaldahúsi Heklaði sér fyrir útborgun í húsi í Þingholtunum Hilmir Snær og Vala eiga von á stúlku Stjörnufans í sumarselskap Söngvakeppnin og stríðsrekstur Ísraels: „Ég er stolt af landinu mínu“ Arnór Ingvi og Andrea skinu skært í sænsku konungshöllinni Sjáðu þrjátíu sekúndur af atriði VÆB í Eurovision VÆB opnar verslun í Kringlunni Reyndi við þrjár milljónir Ný heimildarmynd Attenborough sýnir eyðileggingu í höfum jarðar Stefán Einar keypti 145 milljón króna þakíbúð Logi og Hallveig keyptu hús í 101 Sjá meira