Brynja Jónbjarnardóttir heillar tískuheiminn 6. júní 2011 14:45 Ein myndanna af Brynju úr myndaþætti ljósmyndarans Toby Knott.
Myndaþáttur með fyrirsætunni Brynju Jónbjarnardóttur í aðalhlutverki hefur vakið mikla athygli í netheimum og hlotið mikið lof. Brynja er búsett í London þar sem hún sinnir fyrirsætuhlutverkinu. Myndaþátturinn nefnist Portrait og er myndaður af hinum þekkta ljósmyndara Toby Knott og stíliseraður af Mörthu Ward. Myndirnar eru rómantískar og sumarlegar og á vefsíðunni Fashiongonerogue.com segir að einstakt útlit Brynju fái virkilega að njóta sín á myndunum. Þátturinn þykir svo vel heppnaður að hann hefur farið eins og eldur um sinu um Netið og birst á vel yfir tug erlendra tískublogga. Ekki náðist í Brynju vegna anna, en hún er nýflutt til London þar sem hún hyggst dvelja um óákveðinn tíma. Brynja er á skrá hjá Eskimo Models og kveðst Andrea Brabin, eigandi skrifstofunnar, mjög stolt af stúlkunni. „Að sjálfsögðu er maður stoltur af henni. Hún er tiltölulega nýflutt út en hefur verið að bóka verkefni nánast daglega, sem telst frábær árangur í þessum bransa." Um myndaþáttinn segir Andrea: „Myndirnar eru sérstaklega fallegar og þetta virðist allt bara hafa smollið saman, stíliseringin, myndatakan og hið frísklega útlit Brynju. Útkoman er falleg og sumarleg." Spurð hvort velgengni Brynju þýði að hún sé að mala gull segir Andrea það ekki gerast fyrr en fyrirsætur hafa unnið um hríð. „Fólk heldur það gjarnan, en það er ekki alveg þannig. Hún hefur nóg að bíta og brenna en í fyrstu eru þetta minni verkefni sem þær fá. Eftir því sem mappan verður betri og stærri verða verkefnin það líka." sara@frettabladid.is
Mest lesið Leitin á Svínafellsjökli sem hefur enn ekki skilað árangri Lífið „Sat í átta klukkutíma á dag og horfði út um gluggann“ Menning Bandalag listamanna lýsir yfir stuðningi við Dóru Menning Bestu, stærstu, slökustu og verstu myndir ársins 2025 Bíó og sjónvarp Frægir fundu ástina 2025 Lífið „Ég heyrði þá kalla á mig en gat engu svarað“ Lífið „Það jafnar sig enginn eftir svona og við munum aldrei gera það“ Lífið Best klæddu Íslendingarnir 2025 Tíska og hönnun Krakkatía vikunnar: Ísskápastríð, Eivör og Grafarvogur Lífið „Ef einhver telur að ég hljóti að vera sjúkur, þá verður að hafa það“ Menning Fleiri fréttir Leitin á Svínafellsjökli sem hefur enn ekki skilað árangri Krakkatía vikunnar: Ísskápastríð, Eivör og Grafarvogur „Við byrjuðum að hlusta á jólalög í júlí“ Frægir fundu ástina 2025 Íslenska stelpan sem gerðist mormóni „Við erum öll dauð hvort sem er“ Fréttatía vikunnar: Rob Reiner, Dóra Björt og fullir unglingar 500 Esjuferðir á árinu: „Sumir hrista bara hausinn og lygna augunum“ Útgefandi Walliams lætur hann róa Fáklæddir barþjónar þegar Regnboginn opnaði í Bíó Paradís Þriðja stigs krabbameinið það besta sem kom fyrir hann Dúnninn bakaður í fjóra sólarhringa til að drepa allt í honum Heilsu krónprinsessunnar hrakar gríðarlega Pete orðinn pabbi Nýkominn úr meðferð og „sjaldan verið betur nýsleginn túskildingur“ Laufey á lista Obama „Ég heyrði þá kalla á mig en gat engu svarað“ Opnar sig í fyrsta sinn: Kyssti yfirmanninn í fyrsta sinn þetta kvöld Sex hundruð ára kastali Björns í Frakklandi svo gott sem klár Fyrirsát að Valgerði, Stund Pírata og meint alzheimer Þráins Bertelssonar „Það jafnar sig enginn eftir svona og við munum aldrei gera það“ Ungir sjálfstæðismenn gefa út vandræðalegt fjölskyldudagatal Keough sögð líffræðileg móðir Benjamin Travolta Rússland aftur í Eurovision - undirskriftasöfnun Óskarsverðlaununum streymt á Youtube Karmað muni bíta þjófinn í rassinn þegar títan og glyttan byrja að dansa í hitanum Hreimur og Ólafur Darri perluvinir sem horfa á enska boltann saman „Ég er mamman sem gat aldrei gefið honum það sem hann óskaði sér“ Áttu að hitta Reiner-hjónin daginn örlagaríka Leynigesturinn hitti Heimi Karls beint í hjartastað Sjá meira