Spilar á frelsishátíð í Kosovo 5. janúar 2011 06:00 Rokksveitin spilar á Freedom-hátíðinni í Kosovo í sumar.
Rokksveitin Who Knew verður á faraldsfæti á næstu mánuðum og spilar meðal annars á tónlistarhátíðinni Freedom Festival í Pristina, höfuðborg Kosovo, í júní. „Þetta er risafestival. Ég held að þetta verði alveg geðveikt,“ segir söngvarinn Ármann Ingvi Ármannsson. Hljómsveitin GusGus spilaði á sömu hátíð í fyrra ásamt bandaríska rapparanum Method Man. Næstu tónleikar Who Knew verða á Eurosonic-bransahátíðinni í Hollandi 13. janúar. Þar stíga einnig á svið Dikta, Ólöf Arnalds, Endless Dark og Lára, eins og Fréttablaðið hefur greint frá. Til að safna peningum fyrir ferðalaginu og frekara tónleikahaldi erlendis heldur Who Knew styrktartónleika á Sódómu á laugardagskvöld ásamt Nolo og Sing for Me Sandra. „Við komumst ekki í Loftbrúna þannig að stærsti hængurinn fyrir okkur er að safna styrkjum til að komast út svo við getum spilað á mismunandi stöðum,“ segir Ármann. „Við þurfum að kynna okkur á nýjum mörkuðum.“ Fyrsta plata Who Knew, Bits and Pieces of a Major Spectacle, kom út síðasta vor bæði hér heima og í Þýskalandi, þar sem sveitin er með umboðsmenn. Þeir virðast vera að standa sig í stykkinu því tónleikar eru einnig fyrirhugaðir í Hamborg, Berlín, London og á tónlistarhátíðunum By:Larm í Noregi og South by Southwest í Texas. Erlendar útgáfur hafa sömuleiðis sýnt áhuga á Who Knew og líklega mun sveitin skrifa undir samning við fyrirtæki sem er með bækistöðvar í Japan og Taívan. Bandarískir risar hafa einnig gjóað augunum til sveitarinnar, þar á meðal Universal og Atlantic Records, ásamt útgáfunni Red Ryder.- fb
Mest lesið Brynja Dan og Jóhann selja slotið eftir breytingar Lífið Stjörnulífið: „Já, ég er klámfíkill“ Lífið Úr Eurovision í jógað: „Var ekki nógu góð við sjálfa mig eftir þetta“ Lífið Er óeðlilegt að gift fólk frói sér? Lífið Quang Le „virkilega indæll og mjög næs náungi“ Lífið Brynja Dan og Jóhann keyptu glæsihús í Garðabæ Lífið „Ég er pottþétt ekki á leiðinni til Íslands“ Lífið Maturinn í Ofurskálinni: Vængirnir étnir í tonnatali Lífið Að vera neitað um listamannalaun reyndist algjör frelsun Lífið Fram, fram, framakonur Lífið Fleiri fréttir Brynja Dan og Jóhann selja slotið eftir breytingar Listapör, dansfjölskylda og rjómi senunnar á Garðinum Fram, fram, framakonur Maturinn í Ofurskálinni: Vængirnir étnir í tonnatali Glæsilegustu bollur landsins ruku út Svona var hálfleiksatriði Bad Bunny: „Guð blessi Ameríku“ Úr Eurovision í jógað: „Var ekki nógu góð við sjálfa mig eftir þetta“ Quang Le „virkilega indæll og mjög næs náungi“ Stjörnulífið: „Já, ég er klámfíkill“ Er óeðlilegt að gift fólk frói sér? Prinsinum hafi verið hent út á miðnætti Hamilton ætlar ekki að bruna Tímabilið sem flestir vilja gleyma Festist í lyftu í New York Að vera neitað um listamannalaun reyndist algjör frelsun Krakkatía vikunnar: Fáni, Esbjerg og Ormstunga Þúsund hlauparar í stuði í Norðurljósahlaupi ON Söngvari 3 Doors Down látinn „Ég er pottþétt ekki á leiðinni til Íslands“ Alma stolt af syninum Hitnar í kolunum hjá Heated Rivalry-stjörnum? Mótorhjól eru bönnuð í Grænlandi Gerði leigusamning við krabbameinið Fréttatía vikunnar: Framsókn, Epstein-skjölin og Dagur Sig Tæplega 28 þúsund í mat á mánuði: „Hvar voru þið að svindla?“ Karlmennskan rís úr öskunni Sjö dýrustu eignirnar sem seldust árið 2025 Alan Carr á Íslandi „Ungir drengir eru búnir að láta segja sér að þeir séu eitraðir“ Gummi Emil á leið í fæðubótarefnin Sjá meira