Louis Vuitton pantar íslenskan kór 15. nóvember 2011 12:00 Hörður Áskelsson segir þreifingar eiga sér stað um að kórinn syngi líka hjá Louis Vuitton í Tókýó. Fréttablaðið/Anton „
Þetta er feykilega spennandi,“ segir Hörður Áskelsson, stjórnandi kammerkórsins Schola cantorum. Í lok mánaðar heldur átta manna hópur úr kórnum til Osaka í Japan þar sem hann mun syngja í tengslum við opnun tískuverslana Louis Vuitton. Schola cantorum er einn þekktasti kammerkór landsins og hefur komið víða við og hlotið fjölda viðurkenninga síðan hann var stofnaður árið 1996. Kórinn er þekktur fyrir fjölbreytni í verkefnavali, til að mynda vann hann með Björk að Medúllu og tók þátt í flutningi Hrafnagaldurs Sigur Rósar, en þetta er frumraun kórsins í tískuheiminum. „Það er tískuhúsið Louis Vuitton í París sem pantar okkur í verkefnið. Böndin bárust að okkur í gegnum umboðsmann sem hafði spurnir af okkur, en þau vildu fá lítinn, góðan, norrænan kór til að flytja jólatónlist og norræna tónlist.“ Tískurisinn Louis Vuitton ætlar greinilega að opna með pompi og prakt í Osaka, því vinnan verður mikil að sögn Harðar. „Við munum syngja þarna nokkrum sinnum á dag í þrjá daga, á þremur stöðum í borginni. Þau vilja hafa efnisskrána fjölbreytta þannig að við munum flytja þjóðlega, íslenska tónlist í bland við hátíðlega jólatónlist. „Þetta er afskaplega skemmtilegt fyrir okkur sem erum svo heppin að vera boðið að gera þetta. Við ætlum bara að standa okkur vel og hafa gaman af.“ Þeim sem vilja sjá Schola cantorum áður en kórinn heldur í langferðina er bent á aðventutónleika sem haldnir verða 27. nóvember í Hallgrímskirkju. - bb
Mest lesið Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Lífið Loksins sást til hjónanna Lífið Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Lífið Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Lífið Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Lífið Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Lífið „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Lífið Joanna Pettet er látin Bíó og sjónvarp Björk og Yara nýtt par Lífið Niðurgangur, æla og nóg af pungspörkum Gagnrýni Fleiri fréttir Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út Sjá meira