Playmo tryllir lýðinn í sumar 16. apríl 2011 13:00 Frá vinstri: Þórarinn Jónasson, Baldvin Gunnar Árnason, Ólafur Gunnar Jónsson, Björgvin Hörður Arnarson og trommarinn Hanna Rut.fréttablaðið/daníel
Ballhljómsveitin Playmo ætlar að sér stóra hluti í sumar. Vinskapur við hljómsveitirnar Mars og Dalton varð til þess að Playmo var stofnuð. „Við ætlum okkur stóra hluti í sumar,“ segir Baldvin Árnason, eða Baddi, gítarleikari reykvísku ballhljómsveitarinnar Playmo. Sveitin byrjaði að spila opinberlega fyrir einu ári og ætlar að vera dugleg við spilamennsku í sumar. Á efnisskránni eru dansvæn lög eftir vinsælar hljómsveitir enda er stefna Playmo að halda fólki úti á dansgólfinu eins lengi og mögulegt er. „Það er ekkert skemmtilegra en að standa uppi á sviði og sjá fólk dansa sig sveitt. Það veitir okkur mestu ánægjuna. Við ætlum að spila mikið í sumar og gera Playmo að þekktu nafni á meðal ballhljómsveita,“ segir Baddi og útilokar ekki að einn góðan veðurdag verði Playmo stærri en Skímó. Hann horfir mjög upp til Sálarinnar hans Jóns míns, sem trónaði á toppi ballbransans í mörg ár. „Það er erfitt að komast með tærnar þar sem þeir hafa hælana. Það vantar í dag fleiri hljómsveitir á þessum skala eins og Sálina og SSSól og við viljum taka þátt í að endurvekja þessa ballmenningu. Þetta er lítill markaður eins og stendur og það mættu alveg vera fleiri staðir í bænum sem eru með svona live-tónlist.“ En hvers vegna ákváðuð þið að hella ykkur út í þennan erfiða ballbransa? „Okkar vinahópur er dálítið í þessu. Við þekktum strákana í Mars og Dalton og höfum stundað böllin mikið með þeim. Við ákváðum einn daginn að stefna á svipað ról og þeir,“ segir Baddi, sem telur Dalton vera bestu ballhljómsveit landsins. Til marks um vináttuna við Dalton tók Playmo nýverið upp nýtt lag sem nefnist „Já sæll, já fínt“ í hljóðveri Bödda, söngvara Dalton. Í laginu eru hinir ýmsu frasar úr Vaktaþáttunum teknir og þeir hnoðaðir saman í eitt lag. „Þetta er ekta lag sem grípur mann og festist í hausnum á manni.“ Meðlimir Playmo eiga mismunandi bakgrunn og eru allir yfir þrítugt, nema trommuleikarinn Hanna Rut. Baddi og Þórarinn Jónsson gítarleikari eru báðir flugvirkjar, söngvarinn Ólafur Gunnar Jónsson er skrifstofumaður, Björgvin Hörður Arnarson bassaleikari er smiður og Hanna Rut er í námi. „Það eru eiginlega allir fjölskyldumenn nema ég,“ segir Baddi og viðurkennir að það hafi verið erfitt að koma Playmo af stað þegar hljómsveitin var að æfa prógrammið sitt. „Það þurfti svo gríðarlegan tíma í æfingar og það er ennþá erfitt að blanda þessu saman en við eigum mjög góðar fjölskyldur.“ Fram undan hjá Playmo er páskaball í Vík í Mýrdal á skemmtistaðnum Ströndinni. Þar verður nýja lagið „Já sæll, já fínt“ vafalítið spilað auk þess sem Svartur afgan með Bubba í rokkaðri útgáfu Playmo hefur lengi verið funheitt á dansgólfinu. freyr@frettabladid.is
Mest lesið Súrrealísk upplifun í prinsessuleik í Versölum Lífið Ósýnileg veikindi hafi ekki minna vægi Lífið Sögulegt hús fær nýtt líf: Hafnfirðingar hrannast inn, segja sögur og þakka fyrir Lífið Búið spil hjá Katy Perry og Orlando Bloom Lífið Rúrik mætti með kærustuna í brúðkaupið Lífið Villeneuve leikstýrir næstu mynd um James Bond Bíó og sjónvarp „Ætlaði að halda þessu leyndu“ Lífið Reykjalundur hlýtur alþjóðlega gæðavottun fyrir endurhæfingarþjónustu Lífið samstarf Neistalaus trekantur leiðinlega fólksins Gagnrýni „Las þetta allt í drasl í gamla daga“ Lífið Fleiri fréttir Íslensku sjónvarpsverðlaunin veitt í fyrsta sinn í október Búið spil hjá Katy Perry og Orlando Bloom Súrrealísk upplifun í prinsessuleik í Versölum Sögulegt hús fær nýtt líf: Hafnfirðingar hrannast inn, segja sögur og þakka fyrir Purrkur Pillnikk spilar á Innipúkanum Ósýnileg veikindi hafi ekki minna vægi „Las þetta allt í drasl í gamla daga“ Þessi vilja verða safnstjóri Listasafns Reykjavíkur Þorgerður brák grafin úr gleymsku „Þú gerir heiminn að betri stað“ Ástin kviknaði á Humarhátíð Rúrik mætti með kærustuna í brúðkaupið Sælureitur Frosta og Helgu Gabríelu til sölu Tíu Þjóðhátíðarráð Arons Mola: „Ekki fara í tjörnina “ Bezos færir brúðkaupið vegna mótmæla Fyrsta fjölbragðaglímufélag landsins stefnir á sýningu „Þetta er auðvitað klisja en hann var fullkominn“ Zendaya sást í miðbænum Orri Steinn og Sylvía Rós eignuðust stúlku á þjóðhátíðardaginn Sumarleg og saðsöm salöt Verðlaunahús í Þingholtunum falt fyrir 239 milljónir Hálfmaraþon í hamingjusprengju eftir fótbrot í fyrra Glæsilegustu gellur Garðabæjar skáluðu á Garðatorgi „Ætlaði að halda þessu leyndu“ Heillandi heimili á Kársnesinu fyrir 236 milljónir „Fallegur fjölskyldusamruni“ Feneyjabúar æfir yfir glæsibrúðkaupi Bezos Stjörnum prýtt brúðkaup landsliðsmanns í Grikklandi Barnahátíðin Kátt snýr aftur Stjörnulífið: Laufey á Íslandi og stjörnubrúðkaup í Grikklandi Sjá meira