Lífið

Plata frá Noel Gallagher

Sólóplata er væntanleg frá Noel Gallagher, sem er rólegi Gallagher-bróðirinn.
Sólóplata er væntanleg frá Noel Gallagher, sem er rólegi Gallagher-bróðirinn.
Noel Gallagher, rólegi Gallagher-bróðirinn, sendir frá sér sólóplötuna Noel Gallagher‘s High Flying Birds í október.

Platan inniheldur fyrstu lögin frá Gallagher frá því að hann hætti í Oasis í fússi í ágúst árið 2009, en hljómsveitin hætti í kjölfarið. Platan var tekin upp í London og eftirvinnslan fór fram í Los Angeles í fyrra. Platan inniheldur tíu lög, en upptökum stýrði hann sjálfur ásamt Dave Sardy.

Liam Gallagher, æsti Gallagher-bróðirinn, fer sem kunnugt er fyrir hljómsveitinni Beady Eye, sem sendi frá sér plötu fyrr á árinu. Liam hefur ekkert tjáð sig um væntanlega plötu bróður síns, en búast má við að hann láti gamminn geisa innan tíðar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.