„Ég og skepnurnar átum þetta eitur“ 7. júlí 2011 05:30 Steingrímur Jónsson
Steingrímur Jónsson, bóndi í Efri-Engidal í Skutulsfirði, tekur niðurstöðum jarðvegsmælinga Umhverfisstofnunar með fyrirvara. Hann sér ekkert jákvætt við málið. Það eigi ekki síst við um þá niðurstöðu að díoxín finnist ekki í eins miklu magni í jarðvegi á hans landi eins og var óttast. Ástæðan er einföld, og Steingrímur vitnar í greinargerðina, eða að lítið díoxín í jarðvegi megi rekja til þess að skepnurnar hans átu það í beit eða með fóðri sem þeim var gefið, áður en það náði að setjast í svörðinn. Steingrímur missti allan sinn búpening vegna díoxínmengunar sem í skepnunum mældist. Voru það 20 nautgripir og 80 fjár. „Það má vera að þetta sé jákvætt, en það sem ég les út úr þessu er að ég hreinsaði mengunina upp jafn óðum. Þar sem var slegið og bitið er hreinna en landið í kring. Þetta kom því ekki í veg fyrir að ég og dýrin mín menguðumst. Díoxín mælist 60 prósent yfir mörkum í mér og piltinum í stöðinni [starfsmaður sorpbrennslunnar Funa],“ segir Steingrímur. „Eftir að hafa kynnt mér hvernig þessi sýni voru tekin er svolítið vantraust í mér. En þetta eru sérfræðingarnir svo kannski á ég ekki að rengja þá.“ Bóndinn bætir því við að í raun sé eina sýnatakan sem skipti hann máli hafi verið blóð og mjólkursýni úr dóttur hans sem sýndi mun lægri tölur en hjá honum sjálfum. Hún var með barn á brjósti þegar hún bjó í foreldrahúsum. Þegar Steingrímur er spurður hvort hann hyggi á búskap á jörðinni í framtíðinni segir hann allt of snemmt að svara nokkru um það. Hans réttindamál séu óljós og milljóna fjárfesting að koma sér upp bústofni að nýju.
Mest lesið Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Innlent Fannst blautur og kaldur eftir fimm tíma leit Innlent Kornabarn reyndist á lífi í líkhúsi Erlent Skemmdarverkið setti svip sinn á útför Innlent Ekki jákvætt þegar lögregla tekur af manni launin Innlent „Ef það gerist aftur mun þetta versna til muna!“ Erlent Reyndi að stela verkfærum iðnaðarmanna Innlent Sníkjudýrsaðferðin komin til Íslands: Hvers vegna var efnunum komið fyrir í sjókistu? Innlent Kristrún um Trump: „Það er hlýtt á milli okkar“ Innlent Rússneska herskipið aftur innan lögsögunnar Innlent Fleiri fréttir Skemmdarverkið setti svip sinn á útför Reyndi að stela verkfærum iðnaðarmanna Fannst blautur og kaldur eftir fimm tíma leit Ætla aftur að mála regnbogafánann Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Rússneska herskipið aftur innan lögsögunnar Jón Ingvar vildi níutíu milljónir en fær ekki krónu Kristrún um Trump: „Það er hlýtt á milli okkar“ Ríkisútvarpið braut ekki gegn siðareglum Trump, hóteldeilur og VestFest í kvöldfréttum Evrópusambandið sé verkfæri til að ná stöðugleika Stjórnandi drónans taldi sér ógnað og byssumaðurinn dæmdur Aukin framlög til varnarmála og öflugur stuðningur við Úkraínu á leiðtogafundi NATO Talið að tveir hafi staðið að meintum hatursglæp Gæsluvarðhald framlengt í Straumsvíkurmálinu Lögreglan leitar þessara manna Ísland skari fram úr ESB á flestum mælikvörðum Rannsaka málið sem hatursglæp Sneri sér við, greip í spaðann á Kristrúnu og gekk út Eldsvoði á Siglufirði nam þriðjungi bættra tjóna Ekki jákvætt þegar lögregla tekur af manni launin Fara áfram fram á varðhald yfir öllum níu Fær mál vegna sáðláts í andlit ekki tekið upp á ný Raforkueftirlitið fylgist með að lægri raforkukostnaður skili sér til neytenda Spenna á ráðstefnu NATO, raforkukostnaður og biskup um regnbogafánann „Líkist meira fána Grænhöfðaeyja heldur en þeim íslenska“ Lokuð akrein á Suðurlandsvegi og kvikmyndatökur á Krýsuvíkurleið Ummæli Trump um Grænland þurfi ekki að koma á óvart Skemmdarvargar máluðu yfir regnbogafánann Bjóða 250 þúsund krónur fyrir staðsetningu hvalveiðiskipanna Sjá meira