Segir umræðuna um samningsmarkmið í bakherbergjum Þorbjörn Þórðarson skrifar 7. júlí 2011 12:00 Haraldur Benediktsson, formaður Bændasamtaka Íslands.
Haraldur Benediktsson formaður Bændasamtakanna segir að umræðu um samningsmarkmið Íslands gagnvart ESB eigi að draga inn í bakherbergi samninganefndarinnar. Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur ekki vilja hvika frá skýlausri kröfu Bændasamtakanna um fullkomna tollvernd íslenskra matvæla í aðildarviðræðum við Evrópusambandið. Sambandið er í eðli sínu tollabandalag, en fram kemur í áliti meirihluta utanríkismálanefndar Alþingis um aðildarumsókn Íslands að þar sem ESB sé í grunninn tollabandalag yrðu augljósustu áhrif ESB aðildar á tollamál hér á landi að Ísland þyrfti að taka upp tollskrá ESB. Við aðild myndu tollar milli Íslands og aðildarríkja ESB falla niður, m.a á landbúnaðarafurðum. Haraldur Benediktsson, formaður Bændasamtakanna, segir eðlilegt að setja fram kröfu um tollvernd íslenskra matvæla í samningaviðræðum við Evrópusambandið. Er það ekki óskhyggja að vera í aðildarviðræðum við Evrópusambandið og halda kröfu um tollvernd íslenskra matvæla til streitu? „Margt í áliti meirihluta Alþingis frá 16. júlí 2009 er óskhyggja. Undir það ætla ég að taka. Þeir verða frekar að svara því frekar en við, en við viljum aftur á móti draga umræðuna um samningsmarkmiðin og heildarhagsmuni Íslands fram í dagsljósið því okkur sýnist að umræðuna um hagsmuni Íslands og samningsmarkmið eigi að draga inn í bakherbergi samninganefndar Íslands," segir Haraldur. Hvað áttu við með því? "Hvar fer fram opin umræða um samningsmarkmið Íslands? Það er skortur á henni." Haraldur gagnrýnir einnig að í samninganefndinni hafi sjónarmiðum landbúnaðarins ekki verið haldið á lofti, en hann segir að "varnarlínurnar hafi ekki verið dregnar" þegar komi að landbúnaðinum. Í fundargerð samninganefndarinnar frá 19. maí birtist ágreiningur um undirbúning samningsmarkmiða vegna landbúnaðarmála og formaður samningahópsins lýsti því yfir að umboð fulltrúa sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytis væri takmarkað að því er varðar skoðun á öðrum kostum en tollvernd. Er það ekki skýr birtingarmynd þess að landbúnaðurinn eigi sína fulltrúa í samninganefndinni og því sé vel verið að halda á lofti kröfum bænda? „Ég get ekki svarað því, ég hef ekki lesið fundargerðirnar nákvæmlega. Eina sem ég veit er að samningahópur um landbúnað hefur ekki komið saman í heild sinni frá 21. febrúar síðastliðnum þannig að það hefur ekki farið fram nein umræða um afstöðuna til landbúnaðarmála, í raun og veru," segir Haraldur. thorbjorn@stod2.is
Mest lesið Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Innlent Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Innlent „Við verðum að fá fólk heim aftur“ Innlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent Ákærður fyrir banatilræði við Trump Erlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Innlent „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Innlent Fleiri fréttir „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Sjá meira