Áætlun um færslu flugvallarins heldur sér Hafsteinn Hauksson skrifar 7. júlí 2011 12:13 Vélar á vellinum
Formaður skipulagsráðs segir að áfram verði stefnt að því að færa Reykjavíkurflugvöll í áföngum í drögum að nýju aðalskipulagi. Hann segir umræðu um svæðið undanfarna daga byggða á misskilningi. Núgildandi aðalskipulag gildir til ársins 2024, en þar segir að frá árinu 2016 verði ekki rekin fleiri en ein flugbraut á Reykjavíkurflugvelli frá árinu 2016. Frá þeim tíma verði hafist handa við að undirbúa svæðið fyrir frekari uppbyggingu, en aðeins er gert ráð fyrir flugrekstri á vellinum til enda skipulagstímabilsins árið 2024. Nú stendur yfir vinna við nýtt aðalskipulag sem kemur til með að gilda öllu lengur, eða til ársins 2030. Drögin að skipulaginu verða kynnt í haust, en að sögn Páls Hjaltasonar, formanns skipulagsráðs, verður engin breyting á framtíð flugvallarins frá fyrra aðalskipulagi eins og drögin líta út. „Þetta er óbreytt, það er ennþá gert ráð fyrir að þessar dagsetningar haldi sér," segir Páll. Hann segist ekki sjá fyrir sér að þær breytist, þó flugvallarmálin séu alltaf í skoðun. Nú er til umræðu samkomulag milli innanríkisráðuneytisins og borgarinnar sem felur í sér að fallið verð frá byggingu nýrrar samgöngumiðstöðvar í Vatnsmýrinni, en hægt verði að ráðast í endurbætur á aðstöðunni á Reykjavíkurflugvelli. Í fréttum okkar í gær sagði Ögmundur Jónasson Innanríkisráðuneytisins að samkomulagið festi flugvöllinn í sessi til næstu ára. Páll segir hins vegar að samningurinn hafi ekkert með framtíð flugvallarins að gera að þessu leyti. „Nei, hann hefur ekkert með þetta að gera og tekur enga afstöðu til þess. Það sem er hins vegar mikill og góður kostur við samninginn er að Reykjavík getur fengið til skipulags svæði meðfram sjónum í Skerjafirðinum, og getur þannig byrjað að skipuleggja hverfi í Vatnsmýrinni." Hann segist telja að umræða um flugvöllinn undanfarna daga sé byggð á misskilningi.
Mest lesið Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Innlent Kornabarn reyndist á lífi í líkhúsi Erlent Fannst blautur og kaldur eftir fimm tíma leit Innlent „Ef það gerist aftur mun þetta versna til muna!“ Erlent Ekki jákvætt þegar lögregla tekur af manni launin Innlent Kristrún um Trump: „Það er hlýtt á milli okkar“ Innlent Ætla aftur að mála regnbogafánann Innlent Rússneska herskipið aftur innan lögsögunnar Innlent Sníkjudýrsaðferðin komin til Íslands: Hvers vegna var efnunum komið fyrir í sjókistu? Innlent Sneri sér við, greip í spaðann á Kristrúnu og gekk út Innlent Fleiri fréttir Fannst blautur og kaldur eftir fimm tíma leit Ætla aftur að mála regnbogafánann Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Rússneska herskipið aftur innan lögsögunnar Jón Ingvar vildi níutíu milljónir en fær ekki krónu Kristrún um Trump: „Það er hlýtt á milli okkar“ Ríkisútvarpið braut ekki gegn siðareglum Trump, hóteldeilur og VestFest í kvöldfréttum Evrópusambandið sé verkfæri til að ná stöðugleika Stjórnandi drónans taldi sér ógnað og byssumaðurinn dæmdur Aukin framlög til varnarmála og öflugur stuðningur við Úkraínu á leiðtogafundi NATO Talið að tveir hafi staðið að meintum hatursglæp Gæsluvarðhald framlengt í Straumsvíkurmálinu Lögreglan leitar þessara manna Ísland skari fram úr ESB á flestum mælikvörðum Rannsaka málið sem hatursglæp Sneri sér við, greip í spaðann á Kristrúnu og gekk út Eldsvoði á Siglufirði nam þriðjungi bættra tjóna Ekki jákvætt þegar lögregla tekur af manni launin Fara áfram fram á varðhald yfir öllum níu Fær mál vegna sáðláts í andlit ekki tekið upp á ný Raforkueftirlitið fylgist með að lægri raforkukostnaður skili sér til neytenda Spenna á ráðstefnu NATO, raforkukostnaður og biskup um regnbogafánann „Líkist meira fána Grænhöfðaeyja heldur en þeim íslenska“ Lokuð akrein á Suðurlandsvegi og kvikmyndatökur á Krýsuvíkurleið Ummæli Trump um Grænland þurfi ekki að koma á óvart Skemmdarvargar máluðu yfir regnbogafánann Bjóða 250 þúsund krónur fyrir staðsetningu hvalveiðiskipanna Sníkjudýrsaðferðin komin til Íslands: Hvers vegna var efnunum komið fyrir í sjókistu? Hættuástand skapist eftir fráhvarf 3G Sjá meira