Vefmiðlarnir WWD.com og Fashionista.com hafa fjallað um málið og komust að því að vinsælustu bloggararnir græða stórkostlega á keyptum umfjöllunum auk þess sem þeir hljóta ýmsar hönnunarvörur að gjöf gegn því skilyrði að fjallað sé um þær. Ónefndur bloggari sagði í viðtali við Fashionista.com að flest tískuhúsin sendi bloggurum vörur gegn umfjöllun. „Þetta er endalaus hringekja af mútum," sagði bloggarinn.
Lesendur bloggsíðna treysta gjarnan á að verið sé að fjalla um tiltekna vöru á hlutlausan hátt en ekki gegn gjaldi og má því deila um hvort bloggarar hafi fallið í þá gryfju að selja ástríðu sína fyrir vörur eða peninga.
Glamourai
Kelly Framel heldur úti bloggsíðunni The Glamourai og segist vinna eftir ströngum siðareglum er hún hefur sjálf sett sér. Hún merki til að mynda vel allar keyptar umfjallanir.
„Ég vil algjört ritfrelsi og hafnaði nýverið samningi þar sem fyrirtækið vildi ákveða orðaval og framsetningu vörunnar á síðunni minni. Fyrirtækið hélt að það gæti átt í sömu samskiptum við mig og sölufólk þegar keypt er umfjöllun."

Susie Bubble
Susie Bubble er þekktasti bloggari Breta og starfaði áður sem ritstýra Dazed Digital sem er vefútgáfa tímaritsins Dazed & Confused.
Hennar tekjur koma frá auglýsingum og samstarfi við tískumerki á borð við Gap, Selfridges, Topshop og Benetton.

Hanneli Mustaparta
Hanneli er einn helsti tískubloggari Noregs en þar gilda strangar reglur um óbeinar auglýsingar á bloggsíðum. Bloggurum hefur verið gert að merkja vel allar færslur sem teljast til óbeinna auglýsinga.
Hanneli er þó búsett í Bandaríkjunum og óvíst hvort hún fari eftir norsku reglunum.

Elin Kling
Elin hefur unnið náið með H&M og var að auki fyrsti bloggarinn sem tískumerkið fékk til að hanna línu fyrir sig.
Elin rekur eigið veftímarit auk bloggsins og fjallar gjarnan um vörur sem hún hefur fengið að gjöf en tekur oftast fram að um gjafavöru sé að ræða.

Brian Boy
Brian Boy hefur haldið úti bloggi frá árinu 2004 og dag hvern heimsækja um fjórar milljónir manna síðuna hans og er bloggið hans eina tekjulind.
„Ég græði mest af auglýsingum en svo fæ ég einnig greitt fyrir að sækja ýmsa tískuviðburði og önnur tilfallandi verkefni eins og að stílisera fyrir H&M."