Óvissa um Eagles-ferð til Hamborgar 28. febrúar 2011 08:00 Glenn Frey og félagar í Eagles spila bæði í Nýju Laugardalshöllinni og í Hamborg í júní.
Á sama tíma og Sena auglýsir tónleika með hljómsveitinni Eagles í Nýju Laugardalshöllinni 9. júní auglýsir Icelandair pakkaferð á Eagles-tónleika í Hamborg tæpum þremur vikum síðar, eða 28. júní, sem kostar á annað hundrað þúsund krónur. „Þetta var tilviljun," segir Þorvarður Guðlaugsson, forstöðumaður íslenska sölusvæðisins hjá Icelandair. „Við erum búnir að vera með þessa miða í svolítinn tíma. Þetta fór á netið tveimur dögum áður en tilkynningin um tónleikana hérna heima kom." Hann viðurkennir að hafa fengið nett sjokk þegar hann frétti að Eagles væri á leiðinni til Íslands. „Auðvitað kippist maður aðeins við. Maður hefði kannski ekki gert þetta ef þessi tilkynning hefði verið komin á undan. Maður hefði sjálfsagt beðið eitthvað með það."Ingi Gunnar Jóhannsson segir eitt að sjá þá hér á landi og annað í Hamborg.Að sögn Þorvarðar hafa nokkrir aðilar keypt miða á tónleikana í Hamborg og enginn hætt við þrátt fyrir tónleikana hér heima. Hann útilokar samt ekki að hætt verði við ferðina út. Allt fer það auðvitað eftir eftirspurninni en um 20-30 miðar eru í boði. Fararstjóri verður Ingi Gunnar Jóhannsson. „Maður er svo vanur því að það komi aldrei neinn hingað en það er ekkert nema gleði yfir því að sjá þá í Laugardalshöll. En það er eitt að sjá þá í Hamborg og annað að sjá þá hér," segir Ingi Gunnar, sem hefur séð Eagles fjórum sinnum. „Þeir eru æðislegir á tónleikum og spilamennskan er eins fullkomin og mögulegt er. Upplifunin að sjá þá er óviðjafnanleg." - fb
Mest lesið Grafalvarlegt nýtt efni: „Jafn tilgangslausar og að selja flugelda inni í helli“ Tónlist Von á tíu nýjum lögum tíu árum eftir andlátið Tónlist Franskt draumabrúðkaup eins og beint úr ævintýri Lífið Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Lífið Brjálaðar boltamömmur berjast Bíó og sjónvarp Geislasverð Loga Geimgengils seldist á 470 milljónir Bíó og sjónvarp „Undirstaða Hörpu mun hristast undir hreinum og ómenguðum krafti“ Tónlist Bríet sviptir hulunni af kærastanum Lífið Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Lífið Stytta af Charlie Kirk á Times Square Lífið Fleiri fréttir Franskt draumabrúðkaup eins og beint úr ævintýri Stytta af Charlie Kirk á Times Square Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Bríet sviptir hulunni af kærastanum Fyrsta lesbían til að prýða Playboy „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Haaland hunsaði Holland Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Sjá meira