Afkastamikið ólíkindatól 6. október 2011 03:00 Ryan Adams hefur verið mjög afkastamikill á ferli sínum og gefið út þrettán hljóðversplötur.
Þrettánda hljóðversplata Ryan Adams, Ashes & Fire, kemur út í næstu viku. Hann hefur sagt skilið við hljómsveitina The Cardinals og vill einbeita sér að sólóferlinum. Bandaríski kántrírokkarinn Ryan Adams gefur út sólóplötuna Ashes & Fire í næstu viku. Hún var tekin upp í hljóðverinu Sunset Sound Factory í Hollywood og upptökustjóri var Glyn Johns sem hefur á löngum ferli starfað með Bítlunum, Bob Dylan, The Clash, The Who og The Rolling Stones. Á meðal gesta á plötunni eru söngkonan Norah Jones og Benmont Tench, sem hefur spilað með Tom Petty and the Heartbreakers. Ryan Adams, sem verður 37 ára í nóvember, hefur margoft verið tilnefndur til Grammy-verðlaunanna á ferli sínum. Hann kemur frá borginni Jacksonville í Norður-Karólínu. Fyrsta alvöru hljómsveitin hans var Whiskeytown sem var undir sterkum áhrifum frá kántrítónlist. Hún gaf út þrjár plötur þar á meðal Strangers Almanac sem fékk mjög góðar viðtökur. Eftir að sveitin hætti gaf Adams út sína fyrstu sólóplötu, Heartbreaker, árið 2000. Hún seldist frekar lítið en sú varð ekki raunin með þá næstu, Gold, sem kom út ári síðar. Fyrsta smáskífulagið New York, New York, naut vinsælda og Adams varð þekkt nafn innan tónlistarheimsins. Eftir að hafa gefið út þrjár sólóplötur til viðbótar, þar á meðal Rock N Roll þar sem Melissa Auf der Maur úr The Smashing Pumkins og Billie Joe Armstrong voru gestir, stofnaði Adams hljómsveitina The Cardinals sem hafði spilað með honum á tónleikaferðum. Eftir að hafa gefið út nokkrar plötur með henni ákvað Adams nýverið að hefja sólóferilinn aftur. Adams er mjög afkastamikill tónlistarmaður því á frekar stuttum ferli hefur hann gefið út þrettán hljóðversplötur. Hann hefur einnig daðrað við ýmislegt fleira og þykir mikið ólíkindatól. Hann gerði eigin útgáfu af lagi Oasis, Wonderwall, og fékk fyrir það Grammy-tilnefningu. Hann var upptökustjóri plötunnar Songbird með Willie Nelson og gaf á síðasta ári út þungarokksplötuna Orion hjá eigin útgáfufyrirtæki, Pax-Am. Adams tók einnig upp eigin blúsútgáfu af plötu The Strokes, Is This It, sem aldrei hefur verið gefin út. Jafnframt hefur hann gefið út tvær bækur og hyggur á útgáfu þeirrar þriðju á næsta ári. Nýja platan Ashes & Fire hefur fengið góðar viðtökur. Breska tímaritið Q gefur henni fjórar stjörnur og segir að Adams sé í sínu besta formi í langan tíma. freyr@frettabladid.is
Mest lesið „Þetta var morðingi frænda míns, bara alvöru morðingi“ Lífið „Sjálfsvinna er ævistarf“ Lífið „Ég hélt að ég væri hreinlega að deyja“ Lífið „Ég ræð ferðinni“ Lífið „Þetta gekk eins og í lygasögu“ Lífið „Þessi Barbie-dúkka horfir ekki á neitt nema spegilinn“ Lífið Jökull og Telma hvort í sína áttina Lífið Sjálfskipaður Yoda okkar Íslendinga hefur rangt fyrir sér Lífið „Fegurð er miklu meira en bara útlit“ Lífið „Enginn skömm að því að leita sér hjálpar“ Lífið Fleiri fréttir „Sjálfsvinna er ævistarf“ „Þetta var morðingi frænda míns, bara alvöru morðingi“ „Þetta gekk eins og í lygasögu“ „Ég hélt að ég væri hreinlega að deyja“ „Ég ræð ferðinni“ Jökull og Telma hvort í sína áttina „Þessi Barbie-dúkka horfir ekki á neitt nema spegilinn“ „Fegurð er miklu meira en bara útlit“ Stórum hluta kærunnar vísað frá Íslandsvinurinn Gucci Mane frelsissviptur Birnir á lag ársins Myndaveisla: Hundar og kettir velkomnir síðan árið 2017 „Enginn skömm að því að leita sér hjálpar“ Logi Bergmann spyr fjölmiðlamenn spjörunum úr „Ef þú ert að fara í gegnum helvíti haltu bara áfram“ Páskar: Ef þú mættir velja einhvern til að krossfesta Hvað veistu um… Óskarsverðlaunin? Bubbi, kílómetragjaldið og svikin um boltaland fyrir fullorðna Notaði allar líflínurnar í byrjun þáttarins Hlustendaverðlaunin: Kaleo er flytjandi ársins Páskabingó Blökastsins Úr Brúðkaupsþættinum Já yfir í að þjálfa leiðtoga Bubbi með opna hljómsveitaræfingu í Höllinni „Þá spurði ég hann hvort hann vildi gamla eða nýja ísinn“ Mótefni gegn afmennskun og kúgun Var sagt að þetta væri „hluti af því að vera kona“ Hundrað skvísur blómstruðu saman Er ástin blind? Eru konur ástsjúkari en karlar? Kom gríðarlega stórum hlut í gegnum kleinuhring án þess að skemma hann Förgun bóka áþekk því að lóga gæludýrum Sjá meira