Magnús sá eini sem hreinsaður var af sök Þorbjörn Þórðarson skrifar 22. febrúar 2011 12:03 Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari.
Magnús Ármann er eini sakborningurinn í Ímon-málinu sem hefur verið hreinsaður af sök af embætti sérstaks saksóknara. Embættið hefur ekki sent mörg bréf til einstaklinga sem höfðu réttarstöðu sakbornings. Eins og komið hefur fram hefur embætti sérstaks saksóknara frekar gefið einstaklingum réttarstöðu sakbornings við upphaf rannsóknar þar sem slíkt gefur viðkomandi einstaklingum aukin réttindi samkvæmt lögum. Þegar vafi hefur verið uppi hefur embættið talið rétt að gefa viðkomandi frekar stöðu sakbornings en vitnis. Rökstuddur grunur verður að vera til staðar svo einstaklingar fái réttarstöðuna en að baki þessu liggur einnig ákveðin varúð því vitni sem skylt er að svara spurningum að viðlagðri refsiábyrgð getur ómeðvitað varpað á sig sök en rétturinn einstaklinga til að fella ekki á sig sök er talinn felast í ákvæðum stjórnarskrárinnar og mannréttindasáttmála Evrópu um réttláta málsmeðferð.Skylt að tilkynna sakborningi Í lögum um meðferð sakamála kemur fram að þegar gengið hefur verið úr skugga um að rannsókn sé lokið skuli tekin ákvörðun um hvort ákæra eigi eða ekki. Ef rannsókn er lokið án útgáfu ákæru ber að tilkynna sakborningi um það að hann hafi ekki réttarstöðu sakbornings og að rannsókn sé lokið. Eins og kunnugt er fékk fjárfestirinn Magnús Ármann, sem hafði réttarstöðu sakbornings í Imon-málinu svokalllaða, bréf þess efnis og er hann ekki grunaður um refsiverða háttsemi í málinu. Samkvæmt heimildum fréttastofu er Magnús sá eini sem fékk slíkt bréf frá embættinu í þessu tiltekna máli en rannsókn á málinu í heild er ekki lokið. Sigurjón Þ. Árnason, fyrrverandi bankastjóri Landsbankans, er ennþá grunaður í málinu og því með réttarstöðu sakbornings í skilningi laga um meðferð sakamála.Níu fengu bréf í Exeter-málinu Þónokkrir einstaklingar sem höfðu réttarstöðu sakbornings hafa fengið bréf frá embætti sérstaks saksóknara. T.d fengu níu einstaklingar slíkt bréf í Exeter-málinu, en þrír voru sem kunnugt er ákærðir fyrir umboðssvik í málinu, fyrrverandi sparissjóðsstjóri Byrs, fyrrverandi stjórnarformaður sparisjóðsins og fyrrverandi forstjóri MP banka, og voru það fyrstu ákærurnar sem embætti sérstaks saksóknara gaf út. Eftir því sem fréttastofa kemst næst er heimildinni um að tilkynna sakborningi bréflega að um breytta réttarstöðu sjaldan beitt í málum þar sem rannsókn er enn í gangi, en henni hins vegar beitt í tilvikum þegar gengið hefur verið úr skugga um að viðkomandi sé ekki þannig riðinn við málið og ekki grunaður um refsiverða háttsemi. thorbjorn@stod2.is
Mest lesið Óveður gengur yfir landið Innlent Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Innlent Viðvaranir á viðvaranir ofan Veður Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Innlent „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Innlent Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Innlent Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Innlent Fylgstu með lægðinni í beinni Veður Fleiri fréttir Hreyfingin stærri en einstakar persónur Aftakaveður gengur yfir landið og búist við vegalokunum vegna ófærðar Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Inga vill áfram banna atvinnumannahnefaleika Vatnið finni sér leið í gegnum sprungur Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Óveður gengur yfir landið Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Hvetur verkalýðshreyfinguna til samstöðu Skuldar ekkert Fór úr bílnum og hljóp undan lögreglu Enn versnar spáin með nýjum viðvörunum Bandero leitar skjóls í Reykjavík Air Atlanta vinnur áhættumat vegna árása Húta Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Baráttan um varaforsetana: Valdabrölt eða samsæriskenningar? Salmonella greindist í kryddi Kokku Frumvarp um Ríkisútvarp gagnrýnt harðlega í samráðsgátt Stjórnarandstaðan segir „forfallavírus“ ganga meðal ráðherra Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Pawel tekur við af Sigmari sem þingflokksformaður Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Leita ökumanns sem ók á dreng á reiðhjóli „Þá tökum við auðvitað tillit til þess og hlustum“ Sjá meira