Framsóknarkonur á iði 27. júní 2011 08:00 Þingkonur Framsóknarflokksins eru allar á fullu í líkamsræktinni, hver í sínu horni. Vigdís Hauksdóttir hefur verið í ræktinni í þrjá mánuði og hefur þegar misst sjö kíló, Eygló Harðardóttir býr sig undir hálfmaraþon og Siv Friðleifsdóttir stundar útihlaup. „
Ég er áhlaupamanneskja og byrja allt af krafti. Ég er búin að ná þriggja mánaða markmiðinu mínu sem var að missa sjö kíló," segir Vigdís Hauksdóttir, þingkona Framsóknarflokksins. Þingkonur flokksins, þær Vigdís, Siv Friðleifsdóttir og Eygló Harðardóttir stunda allar líkamsrækt af kappi um þessar mundir. Siv Friðleifsdóttir hefur lagt stund á sjósund undanfarin ár en tók nýverið upp á þeirri iðju að hlaupa úti. „Ég fékk í lungun í vetur og er að reyna að hlaupa það úr mér." Þingkonunni finnst útihlaupin vera mjög slakandi og gefandi, hún er ekki mikið fyrir að fara í hinar hefðbundnu líkamsræktarstöðvar heldur kýs frekar að njóta náttúrunnar í allri sinni dýrð. „Það er frábært að hlaupa og virkilega hressandi." Siv hleypur mikið í Vesturbænum og lætur sér ekki alltaf nægja útiskokkið. „Ég hljóp til að mynda út í Nauthólsvík um daginn, fór í sjósundið og hljóp síðan aftur heim." Eygló Harðardóttir er á sömu nótum og Siv því hún hefur sett sér það markmið að hlaupa hálfmaraþon í Reykjavíkurmaraþoninu í þágu góðs málstaðar. Eygló viðurkennir að hún sé ekki mikil íþróttamanneskja en hún er þó byrjuð að æfa sig. „Ég hleyp þrisvar í viku og reyni síðan að fara í skíðavélina þess á milli. Ég geri bara eins mikið og lappirnar á mér þola," segir Eygló en hún hyggst vekja athygli á legslímuflakki með þátttöku sinni. Mikið hefur verið látið með holdafar formanns flokksins, Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, sem sjálfur hefur sagt að hann þurfi að taka sig á. Eygló segir þó ekki vera allt sem sýnist. „Það kæmi fólki á óvart hvað hann er hávaxinn og samsvarar sér vel." Vigdís Hauksdóttir byrjaði í líkamsrækt í mars þegar henni fannst aukakílóin vera farin að læðast aftan að sér. Hún fékk því vinkonu sína, sem er einkaþjálfari, til að leiðbeina sér og vaknaði klukkan hálfsex á morgnana til að geta hreyft sig með henni. „Og nú er ég í kraftgöngum, geng sjö til tíu kílómetra tvisvar til þrisvar í viku og ætla gera það að mínum lífsstíl." Hún bætir því við að hreyfingin sé þingmönnum nauðsynleg. „Til að halda það út í þessu starfi er algjörlega lífsnauðsynlegt að slíta sig frá þessu argaþrasi og hreyfa sig." freyrgigja@frettabladid.is
Mest lesið Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Lífið Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Lífið David kemur áhugalausri Victoriu til varnar Lífið Ljóðrænt hótel á Akureyri Lífið Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Lífið Selja herrasetur í Þingholtunum Lífið „Drullið ykkur í burtu“ Lífið Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lífið Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Lífið Aldraður og moldaður Tom Cruise til bjargar jörðinni Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Sjá meira