Beint úr tökum til Bergen 22. maí 2011 08:00 Jóhannes Haukur Jóhannesson ætlar að drekka í sig menninguna á listahátíð í Bergen á milli þess sem hann flytur Gerplu fyrir Norðmenn. Fréttablaðið/arnþór „
Þetta verður bara alveg frábær og skemmtileg ferð,“ segir leikarinn Jóhannes Haukur Jóhannesson en hann er á leiðinni til Bergen í Noregi með leikhópnum sem stendur á bakvið Gerplu. Jóhannes hoppar eiginlega beint úr tökum á Svörtum á leik til Bergen „Minn síðasti tökudagur er á þriðjudaginn og svo held ég til Bergen á miðvikudaginn,“ segir Jóhannes en þetta verður í fyrsta sinn sem hann kemur til Noregs. „Ég hlakka mikið til að koma þangað. Mér skilst að við séum að sýna í gömlu og flottu leikhúsi í miðbæ Bergen en ég er mikill áhugamaður um leikhús.“ Ásamt Jóhannesi Hauki fara meðal annarra leikaranir Björn Thors og Brynhildur Guðjónsdóttir, en sýningar á Gerplu er hluti af listahátíðinni Nordiske Impulser og verður leikritið sýnt þrisvar sinnum dagana 26 til 28 maí næstkomandi. „Ég ætla að drekka í mig listamenninguna þarna úti enda skilst mér að það sé stútfullt af áhugaverðum viðburðum í boði á þessari hátíð,“ fullyrðir Jóhannes og þvertekur fyrir að ætla að kíkja í búðir í Bergen „Það er nú takmarkaður áhugi fyrir búðarferðum hjá mér. Er ekki Noregur líka dýrasta land í heimi? Ég ætla fyrst og fremst færa Norðmönnum íslenska list og gefa af mér.“ Síðustu vikur hefur Jóhannes staðið í ströngu í tökum á Svörtum á leik en tökum á myndinni lýkur formlega í byrjun júní. „Tökur hafa gengið vonum framar mundi ég segja. Ég hef aðeins fengið að líta yfir upptökurnar í lok hvers dags og útlitið á myndinni kemur mér skemmtilega á óvart. Það er mikið af ofbeldi og viðbjóði svo útlitið er ansi hart og gróft. Það verður spennandi að sjá hvernig myndinni verður tekið. “-áp
Mest lesið Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Lífið Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Lífið Hvað veistu um... gönguleiðir? Lífið „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Lífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Lífið Leiðir skilja hjá leikhúspari Lífið Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Lífið Eva Rún og Blær hljóta Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur Menning Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Lífið Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Lífið Fleiri fréttir Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks South Park verður South America Kappsmál sett á ís Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Hvað veistu um… textana hans Bubba? Engin ákvörðun tekin um Eurovision þátttöku Sögufrægt verslunarhús til sölu Hélt allsherjar skilnaðarpartý: „Ég er frjáls“ Lést eftir mislukkaða typpastækkun í Taílandi „Brúðkaup aldarinnar“ hjá Önnu Fríðu og Sverri Stjörnulífið: Undir hárlengingum og bótoxi leynist íslenskur karlmaður Eitt allra krúttlegasta mót ársins Ólíkt hafast þeir að forsetarnir fyrrverandi Einn mánuður án áfengis breytti öllu Krakkatía vikunnar: Pöndur, Instagram og Sveppi Augnablikið þegar fréttastofan sjálf varð að frétt Sjá meira